„Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 16. júlí 2026 14:45 Pétur G. Markan tók til starfa sem bæjarstjóri Grindavíkur í upphafi mánaðar. Grindavíkurbær Innleiðing á nýju fyrirkomulagi við áhættumat í Grindavík liggur fyrir en bæjarstjóri bindur miklar vonir við árangur breytinganna. Hann segir fyrra áhættumat ekki hafa endurspeglað raunverulegar aðstæður Grindavíkur en markmiðið sé að hefja markvissa uppbyggingu bæjarins.
Í fundargerð bæjarráðs Grindavíkur segir að stofnaðir verði fjórir verkefnahópar sem vinna að áhættumiðaðri skoðun og ákvörðunartöku vegna afmarkaðra þátta: Öryggi í Grindavík á forræði Grindavíkurbæjar Skólahald í Grindavík á forræði Grindavíkurbæjar Húsnæðismál og búseta á forræði verkefnastjóra málefna Grindavíkur Rýmingar og endurkoma á forræði lögreglustjórans á Suðurnesjum Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, segir skipunina vera hluta nýrrar aðferðafræði við vinnslu á áhættumati. Hóparnir vinni að áhættumiðaðri skoðun og ákvörðunartöku vegna afmarkaðra þátta. „Þarna er náttúrlega okkar besta fólk í þessum nefndum sem hefur mikla reynslu af málum Grindavíkur. Þannig við bindum miklar vonir við þetta áhættumat sem muni gefa okkur rými til uppbyggingar í bænum í kjölfarið,“ segir Pétur. Fyrra áhættumat hafi ekki gefið rými til uppbyggingar „Væntingarnar og markmiðið sem við erum að horfa til er að við getum farið að hefja markvissa uppbyggingu og eflt þjónustuna og búsetuna í bænum. Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga sem búa ekki í bænum en eru á leiðinni heim.“ Fyrra áhættumat hafi ekki endurspeglað raunverulegar aðstæður Grindavíkur og hafi ekki gefið rými til uppbyggingar „en þessar breytingar eru í farvatninu núna og við bara bindum miklar vonir við þær,“ segir Pétur. Heilmiklar vendingar hafi þegar orðið í bænum og þær gangi vel. „Loksins þegar við fáum að fara af stað núna setjum við náttúrulega allan kraft í þessa vinnu, þó það sé hásumar, vegna þess að við ætlum að freista þess að vera komin með eitthvað í hendurnar síðsumars sem getur gefið okkur rými til þess að fara í búsetu, uppbyggingu og þjónustu skólahalds í haust.“ Pétur sagði í samtali við Vísi fyrr í vikunni að hann líti ekki svo á að farið sé gegn tilmælum Grindavíkurnefndarinnar með því að hefja skólahald að nýju í bænum í haust en í apríl mælti nefndin ekki með því að barnafjölskyldur flyttu aftur í bæinn á meðan óvissa varir. Allt verði gert til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna en að hefja skólastarf sé fyrsta skrefið af mörgum í uppbyggingu bæjarins. Hann telur Grindvíkinga fullhuga um framtíð Grindavíkur og upplifir ákveðna viðhorfsbreytingu stjórnvalda og þeirra sem vinna að uppbyggingu bæjarins og segir hana mikilsverða. Hvað heldurðu að valdi þessari viðhorfsbreytingu? „Fólk er náttúrulega að átta sig betur og betur á stöðu mála og mikilvægi þess að fara markvisst í uppbyggingu og við þurfum að vera samstíga um það. Þannig að fara markvisst í það að hefja búsetu og uppbyggingu er alltaf gert á forsendum þess að hér sé fullt öryggi í bænum. Þetta er alveg lykilatriði.“ „Við gefum aldrei afslátt af öryggi bæjarins, sem er mikilvægt.“
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Byggðamál Tengdar fréttir Bæjarstjóri í þriðja skipti Pétur G. Markan hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra Grindavíkur. Er þetta í þriðja skiptið sem hann tekur að sér að leiða stjórn bæjar. 3. júlí 2026 08:27 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Sjá meira
Bæjarstjóri í þriðja skipti Pétur G. Markan hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra Grindavíkur. Er þetta í þriðja skiptið sem hann tekur að sér að leiða stjórn bæjar. 3. júlí 2026 08:27