Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Freyja Þórisdóttir skrifar 15. júlí 2026 18:01 Fólkið sem stendur að baki matartrukknum The Food Truck er frá Mexíkó en býr nú á Hvolsvelli. Aðsend Stærsti matarviðburður landsins, Götubitahátíðin, snýr aftur á sinn stað um helgina en líkt og síðustu ár fer hátíðin fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Á sunnudaginn verður svo tilkynnt hver stóð uppi sem sigurvegari árlegu keppninnar um Besta götubita Íslands.
Yfir fjörutíu matarvagnar og sölubásar koma saman á hátíðinni dagana 17.–19. júlí næstkomandi og bjóða gestum upp á fjölbreyttan götumat frá öllum heimshornum. Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu forsvarsmanna hátíðarinnar. Þar segir einnig að hátíðin hafi vaxið hratt undanfarin ár og að ríflega 100 þúsund gestir hafi mætt á hátíðina í fyrra. „Götubitahátíðin snýst um að leiða fólk saman í fallegu umhverfi og gefa gestum tækifæri til að upplifa eitthvað nýtt og spennandi og smakka það besta sem íslensk götubitamenning hefur upp á að bjóða,“ er haft eftir aðstandendum hátíðarinnar. Gestir geta valið sinn uppáhalds bita Einn af hápunktum helgarinnar verður keppnin um Besta götubita Íslands, sem haldin er í samstarfi við European Street Food Awards. Gestir geta kosið sinn uppáhaldsgötubita og sérstök dómnefnd metur framlög keppenda. Hátíðin stækkar alltaf ár frá ári. Í fyrra mættu ríflega hundrað þúsund manns í Hljómskálagarð og gæddu sér á götumat.Aðsend Úrslitin verða kynnt sunnudaginn 19. júlí kl. 17:00. Sigurvegarinn að keppir fyrir hönd Íslands í lokakeppni European Street Food Awards í Evrópu í lok september en í fyrra var það fólkið á bak við mexíkóska matarvagninn The Food Truck sem landaði fyrsta sætinu.
Reykjavík Mexíkó Matur Veitingastaðir Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun