Sport

Vals­menn í vand­ræðum og ó­vænt félagaskipti

Andri Broddason skrifar
Adam Ægir Pálsson var ræddur sem og vandræði Vals á tímabilinu.
Adam Ægir Pálsson var ræddur sem og vandræði Vals á tímabilinu. vísir

Besta sætið snerti á atvikum helgarinnar á þessum blauta mánudegi. Ágúst Orri nýkominn úr sumarfríi og beint í raunveruleikann.

Andri Broddason, Ágúst Orri Arnarsson og Ingvi Þór Sæmundsson fóru yfir það sem bar hæst úr fréttum helgarinnar.

Manchester United hefur staðfest komu Andrey Santos og nánast staðfest komu Youri Tielemans.

Farið var yfir leiki Bestu deildar karla í gær þar sem Valur og ÍA virðast vera í vandræðum í deildinni. Einnig var spáð í spilinn fyrir leik kvöldsins þegar Breiðablik fær Keflavík í heimsókn.

Mikil dramatík var á heimsmeistaramótinu þegar boltinn virðist hafa farið í vír þegar England skoraði fyrra markið sitt gegn Noregi. Einnig var farið yfir rauða spjaldið sem Sviss fékk við dýfu.

Að lokum var farið stuttlega yfir stutta endurkomu Connor McGregor í UFC og rætt hvort hann muni koma aftur.

Þáttinn má heyra í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×