„Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Árni Sæberg og Smári Jökull Jónsson skrifa 10. júlí 2026 15:59 Sveinn Andri og Sindri Snær í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/HULDA mARGRÉT Verjandi Sindra Snæs Birgissonar, sem var ákærður fyrir skipulagningu hryðjuverka ásamt Ísidóri Nathanssyni, segir þá eiga „svimandi“ bótakröfur á íslenska ríkið vegna aðfarar þess að þeim. Líf þeirra hafi verið í kyrrstöðu frá því að þeir voru handteknir fyrir rétt tæpum fjórum árum.
Ríkissaksóknari tilkynnti síðdegis að dómi Landréttar frá 18. júní síðastliðnum, þar sem Sindri Snær og Ísidór voru sýknaðir af ákæru fyrir skipulag hryðjuverka en sakfelldir fyrir vopnalagabrot, yrði ekki áfrýjað. Því er hryðjuverkamálinu svokallaða endanlega lokið, allavega hvað saksókn varðar. Fréttastofa hafði sambandi við Svein Andra Sveinsson lögmann, sem varði Sindra Snæ í málinu. Honum hafði ekki verið tilkynnt ákvörðun Ríkissaksóknara og því færði blaðamaður honum fréttirnar, sem hann sagði mjög ánægjulegar. Næstu skref að sækja bætur „Það er auðvitað sérstaklega ánægjulegt fyrir minn umbjóðanda og báða ákærðu í málinu að þessari hringavitleysu skuli loksins vera lokið, en henni auðvitað hefði átt að vera lokið miklu fyrr. Í mínum huga var þessu máli mjög snemma lokið þannig, hryðjuverkaþætti málsins, en þetta er alltaf fagnaðarefni og núna taka við aðrar aðgerðir í málinu.“ Hvað áttu við með því? „Það er engin spurning að ákærðu í málinu eiga svimandi bótakröfur á ríkið fyrir alla aðförina. Það eru auðvitað næstu skref fyrir þá að sækja bætur á ríkið fyrir þetta mál, gæsluvarðhald og svo framvegis. Ég veit ekki hvar ég á að byrja þar, þeirra líf er búið að vera stopp núna í hvað, þrjú ár, fjögur ár.“ Hefði aldrei átt að leggja af stað í leiðangurinn Sveinn Andri segir niðurstöðu málsins vera mikinn áfellisdóm fyrir lögregluna og ákæruvaldið. „Sérstaklega fyrir ríkislögreglustjóraembættið, hvernig það startaði þessu máli og hefði ekki átt að starta því. Og auðvitað hefðu héraðssaksóknari og ríkissaksóknari átt að hafa rænu á því að að slökkva á þessu máli miklu fyrr.“
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira