Megas er látinn Eiður Þór Árnason skrifar 7. júlí 2026 10:19 Megas og Davíð Þór hljómborðsleikari fara yfir Tvær stjörnur. Spessi Tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund í gærkvöldi. Megas var 81 árs gamall.
Magnús Þór Jónsson fæddist þann 7. apríl 1945 í Reykjavík og var sonur skáldkonunnar Þórunnar Elfu Magnúsdóttur og Jóns Þórðarsonar kennara og rithöfundar. Átti hann eftir að verða einn áhrifamesti tónlistar- og kvæðamaður íslensks samtíma. Áhrif hans á íslenska tungu eru yfir allan vafa hafin og má kalla hann endurreisnarmann í þeim efnum. Á viðburðarríkum ferli áttu lög hans á borð við Tvær stjörnur, Fatlafól, Lengi skal manninn reyna, Reykjavíkurnætur og Spáðu í mig eftir að marka spor í tónlistarsögunni og lifa áfram með þjóðinni. Árið 2021 sakaði Bergþóra Einarsdóttir Megas og annan mann um að hafa brotið á sér kynferðislega árið 2004 og skrifað lagið „Litla ljót“ um brotið. Hún hafi verið tvítug þegar hún kynntist Megasi en hann sextugur. Áttu þessar ásakanir eftir að hafa veruleg áhrif á hvaða augum menn litu verk hans og arfleifð. Kominn af listafólki Textar Megasar voru fjölbreyttir og hefur þeim verið lýst sem fallegum, óvægnum og hranalegum, heimspekilegum, fyndnum, háðskum og einlægum. Megas var afkomandi snæfellska söngmannsins Jóns dýrðarsöngs Pálssonar og átti því ekki langt að sækja tónlistargáfuna. „Það er sennilegt að Megasi hafi verið ætlað að feta tónlistarbrautina líkt og öðrum ættmennum hans sem hafa helgað sig tónlistinni - hann hafi einfaldlega ekki getað flúið örlög sín. Honum er samt margt annað til lista lagt. Snemma kom í ljós hversu drátthagur Megas er og frá æskuárunum er til fjöldi teikninga af ýmsum toga sem hann hefur haldið til haga. Það er einnig stutt í skáldgáfuna enda voru foreldrar hans bókhneigt fólk og fengust bæði við skriftir,“ skrifar Jónatan Garðarsson um listamanninn. Megas gekk í Menntaskólann í Reykjavík þar sem hann málaði leiktjöld, gerði myndskreytingar í skólablaðið og fékk ljóð og smásögur birtar en þessi skáldskapur átti eftir að reynast umdeildur og sagði til um það sem á eftir kom. Gaf út 37 plötur Hann hlustaði á dægurtónlist á menntaskólaárunum og lýsti því hvernig lög og textar Bob Dylans höfðu mótandi áhrif á sig. Í fyrstu veigraði hann sér við að deila tónlistarsköpun sinni með öðrum en árið 1972 kom út fyrsta hljómplata Magnúsar, þegar hann var á 27. aldursári. Platan reyndist verulega umdeild en þar með var ísinn brotinn og Megas sendi í kjölfarið frá sér hverja plötuna á fætur annarri, oft í samstarfi við þá listamenn sem fremstir fóru hverju sinni: Júdas, Spilverkið, Kuklið, Bubba, Nýdönsk og Senuþjófana, svo aðeins örfáir af samstarfsmönnum hans séu nefndir. Fyrsta platan var kennd við listamannsnafnið sem átti eftir að fylgja honum alla tíð en þar ræðst hann gegn hinum helgu véum íslenskrar menningar og syngur til að mynda um Jón Sigurðsson, Jónas og óþarflega fundvísi Ingólfs Arnarsonar. Ferill Megasar var langur og komu um 37 plötur út undir hans nafni og annarra, þar með taldar safnplötur, fram til ársins 2020. Þá gaf hann út níu bækur sem innihéldu meðal annars ljóð, textasöfn, endurminningar og skáldsögu. Megas þáði heiðurslaun listamanna og árið 2024 kom út heimildarmynd um ævi og feril hans í leikstjórn Sigurþórs Hallbjörnssonar, sem þekktur er sem ljósmyndarinn Spessi. Eftirlifandi unnusta Megasar er Margrét H. Blöndal og lætur hann eins eftir sig þrjá syni: Þórð, Gísla og Viðar.
Andlát Tónlist Menning Reykjavík Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira