Lögreglumaður lést eftir árás þar sem sýnt var frá HM-leik á risaskjá Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 13:44 Lögreglumenn á vakt fylgjast með fótboltaáhugafólki ganga á leik í Kaupmannahöfn. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Kristian Tuxen Ladegaard Berg Sænskur lögreglumaður er látinn eftir að hafa slasast alvarlega þegar uppþot brutust út í miðborg Kaupmannahafnar þar sem sýnt var frá HM-leik á risaskjá.
Þetta staðfestir Åsa Bergman, formaður Lögreglusambandsins, við Expressen á föstudag. Samstarfsmenn mannsins hafa einnig haldið minningarathöfn. Gerandinn sem bent var á gaf sig sjálfur fram við dönsku lögregluna en hinn handtekni maður neitar sök. Sænski lögreglumaðurinn Christian Zedig var barinn til bana í Kaupmannahöfn. BREAKING:An eyewitness has told the Danish newspaper Ekstra Bladet what happened when Swedish football fan Christian Zedig was stomped to death by an African gang while watching the Norway - Ivory Coast game at a fan zone in Copenhagen:“A group of 7 or 8 young men arrived at… pic.twitter.com/OmOUoqH9Yx— Visegrád 24 (@visegrad24) July 2, 2026 „Ég er niðurbrotin og þetta er svo djöfulli sárt,“ skrifar eiginkona hans á Facebook. Á föstudaginn héldu samstarfsmenn hans minningarathöfn. Það var fyrir sextán liða úrslitaleik Svíþjóðar og Frakklands sem uppþot brutust út á Islands Brygge í miðborg Kaupmannahafnar, þar sem sýnt var frá HM-leikjum á risaskjá. „Þú varst svo glaður að fara til Kaupmannahafnar til að horfa á Svíþjóð mæta Frakklandi á risaskjá. Þú náðir aldrei að sjá þann leik,“ skrifar eiginkona hans í færslu. Þegar lögreglan kom á staðinn fannst hinn 32 ára Christian Zedig með alvarlega áverka. Samkvæmt upplýsingum frá Smålands-Tidningen reyndi hann að stöðva slagsmálin og varð þá fyrir grófu ofbeldi. View this post on Instagram A post shared by Expressen (@expressen) Christian Zedig, sem starfaði sem lögreglumaður, lést af sárum sínum. „Lífi barna okkar var snúið á hvolf. Þínu lífi lauk vegna þess að einhverjir aðrir tóku þá ákvörðun. Einhverjir aðrir tóku þá ákvörðun að börnin okkar eigi að alast upp án besta pabba í heimi og að ég eigi að lifa lífi án besta eiginmanns í heimi,“ skrifar eiginkonan. Lögreglusambandinu bárust fréttirnar á fimmtudagsmorgun. „Okkur hafa borist þær upplýsingar að samstarfsmaður sé látinn og minningarathöfn var haldin á stöðinni í dag,“ sagði Åsa Bergman, formaður Lögreglusambandsins. Að sögn Åsu Bergman var Christian Zedig í fríi í Kaupmannahöfn og ekki á vakt þegar atvikið átti sér stað. Maðurinn sem grunaður er um verknaðinn, og sem lögreglan hafði lýst eftir, gaf sig sjálfur fram við lögregluna á föstudagsmorgun. Á föstudag fór fram gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum í héraðsdómi Kaupmannahafnar. Samkvæmt danska BT er maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að hafa veitt Zedig eitt högg. Gerandinn á að hafa slegið fast í kjálka eða háls, sem varð til þess að Christian Zedig féll í jörðina. Maðurinn sem grunaður er hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldi. Hann var dæmdur fyrir morðtilraun árið 2017 og fékk þá sjö ára fangelsisdóm. Nú er hann grunaður um vægari líkamsárás. Dómarinn hefur nú tilkynnt að hinn grunaði verði í gæsluvarðhaldi í 26 daga frá og með deginum í dag.
HM 2026 í fótbolta Danmörk Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Fleiri fréttir Real Betis - Real Madrid | Heldur Real Madrid sigurgöngunni áfram? Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Sjá meira