Tæknin kom Portúgal til bjargar og endaði drauma Króata Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 06:40 Luka Modric lék sinn síðasta HM-leik á ferlinum og var að sjálfsögðu svekktur og sár í leikslok. Getty/Patrick Smith Myndbandsdómgæslan réði úrslitum í æsispennandi leik Portúgals og Króatíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í nótt. Portúgal vann 2-1 en Króatar grétu afskipti Varsjárinnar í blálokin.
Leiknum lauk á umdeildan hátt þegar Króatar töldu sig hafa jafnað metin í 2-2 á síðustu andartökunum, en Mario Pasalic var dæmdur rangstæður eftir að myndbandsdómgæsla dæmdi markið af. Aðdáendur Króatíu köstuðu flöskum inn á völlinn og flautuðu til að mótmæla. La reacción de Modrić tras la decisión con el VAR, donde se muestra que Matanovic sí tocó la pelota, por tanto la anotación de Pasalic fue anulada por fuera de juego. pic.twitter.com/ftiyDdMGcf— ESPN Deportes (@ESPNDeportes) July 3, 2026 FIFA sagði síðar að skynjari í boltanum hefði numið að Igor Matanovic, leikmaður Króatíu, hefði snert boltann örlítið áður en hann barst til Pasalic sem var í rangstæðri stöðu. „Dómarinn sagði að hann hefði ekki séð okkar mann snerta boltann,“ sagði Petar Sucic, miðjumaður Króatíu. „Hann sagði að það væri skynjari í boltanum og hann hefði tekið ákvörðun út frá því. En ég veit ekki hvað þetta er. Það er virkilega erfitt að útskýra þetta, en við búumst við því að einhver útskýri þetta fyrir okkur því ef það sem ég sá er rétt, þá snerti Matanovic ekki boltann,“ sagði Sucic. „Þannig að fyrir mér er þetta löglegt mark, en ég veit það ekki. Ég segi að við þurfum að skoða þetta betur og nokkrum sinnum í viðbót. Ég veit það ekki. Í dag var þetta svona. Heppnin var þeirra megin,“ sagði Sucic. Roberto Martinez, þjálfari Portúgals, sagði hins vegar að ekki væri hægt að véfengja ákvörðunina. „Skilaboðin eru mjög skýr: Boltarnir eru núna með örflögu og það er mjög skýrt – þess vegna greip VAR inn í. Það er ekkert huglægt mat – örflaga boltans sýnir það. Þetta var ekki röng ákvörðun, ekki óheppilegur dómur,“ sagði Martinez. „Í dag var þetta skýrt og tæknin hjálpaði. Hún sýndi okkur það. Í dag vorum við heppnir,“ sagði Martinez. Þetta var tíunda markið sem VAR hefur dæmt af hingað til á heimsmeistaramótinu 2026. Croatia thought they had an equaliser, deep into additional time against Portugal, when Josko Gvardiol bundled a finish home from close range. The goal was initially allowed to stand, but replays showed that Mario Pasalic, who passed to Gvardiol, was offside.Simple as that? Not… pic.twitter.com/eCaIkZegCg— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) July 3, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Real Betis - Real Madrid | Heldur Real Madrid sigurgöngunni áfram? Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Sjá meira