Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 2. júlí 2026 12:11 Það er ákveðin listgrein fólgin í því að skrifa heila grein þar sem nánast hver einasta málsgrein byggir á annaðhvort útúrsnúningi, hálfsannleik eða beinum mýtum. En þegar rýnt er í málflutning sumra þeirra sem berjast sem heitast gegn því að íslenska þjóðin fái einfaldlega að sjá hvað er í boði í samningi við Evrópusambandið, kemur í ljós ákveðið mynstur. Það er gamalkunnugt mynstur hræðsluáróðurs sem á að koma í veg fyrir að almenningur fái upplýsingar. Nýleg skrif Jóns Péturs Zimsen, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, eru skólabókardæmi um þessa tækni. Þar er dregin upp heimsendakennd mynd þar sem allt fer í bál og brand ef við skyldum nú taka upp á því að segja já til að sjá ESB-samning í ágúst. Okkur er sagt að varnarsamstarf við Bandaríkin (sem er tvíhliða og óháð ESB) fari í uppnám. Okkur er sagt að ESB-her sé á leiðinni (sambandið er ekki með her). Og það sem fáránlegast er: því er haldið fram að stjórnvöld haldi verðbólgu og vöxtum viljandi uppi til að neyða fólk til að segja já. O.s.frv. Slíkar samsæriskenningar dæma sig í raun sjálfar. Þær lýsa fyrst og fremst miklu vantrausti á greind íslenskra kjósenda. En af hverju er þessum mýtum dælt út? Svarið liggur í því hverjir það eru sem tala svona. Þetta er orðræða þeirra sem hafa það mjög gott í núverandi kerfi. Þetta eru talsmenn ákveðinnar elítu, ef svo má segja, stjórnmálamanna og hagsmunaaðila, sem hagnast á einokun, tollamúrum, lokuðu umhverfi og sveiflum íslensku krónunnar. Fyrir þennan hóp er óbreytt ástand þægilegt. Fyrir þetta fólk er samkeppni, gagnsæi og evrópskt vaxtastig ógnun við eigin forréttindi. Þess vegna er reynt að telja almenningi trú um að það sé „sjálfstæðisbarátta“ og „þjóðarstolt“ að búa við hæstu vexti í Evrópu. Þetta minnir mest á kappleik þar sem hrópað er „áfram Ísland“ af mikilli elju. Það á að vera merki um „yfirburðalífskjör“ að íslenskar fjölskyldur brenni laununum sínum í verðbólgubáli og greiði margfaldan toll af hversdagslegum matvælum miðað við nágranna okkar. Þegar elítan segir „Takk, en NEI takk“, þá er hún í raun að segja: „Við höfum það fínt, verið þið ekki að rugga bátnum.“ Að segja já í ágúst snýst ekki um að samþykkja blindandi inngöngu í eitt eða neitt. Það snýst um að sýna þann sjálfsagða lýðræðislega kjark að sækja samninginn, leggja hann á borðið og fá staðreyndir í staðinn fyrir hræðslusögur. Þegar öllu er á botninn hvolft á ákvörðunin nefnilega að vera í höndum þjóðarinnar, en ekki fárra útvaldra sem vilja stýra umræðunni með því að snúa út úr raunveruleikanum. Leyfum samningnum að líta dagsins ljós. Það er almenningur í þessu landi sem á að eiga síðasta orðið, ekki elítan sem óttast breytingar. Segjum Já til að SJÁ. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar