Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Agnar Már Másson skrifar 1. júlí 2026 08:43 Annar maðurinn reyndist hafa 450 millilítra af kókaínvökva í 15 pakkningum innvortis og hlaut hann að lokum sjö mánaða dóm. Þrír Kólumbíumenn voru í gær sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa 19. febrúar 2026 flutt samtals 2.370 ml af kókaíni í vökvaformi innvortis til Íslands með flugi frá París, ætlað til söludreifingar. Einn sætir sjö mánaða fangelsi en hinir þrjátíu mánaða.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness sem féll í gær. Þrír kólumbískir ríkisborgarar, tveir karlmenn og ein kona, voru stöðvuð í tollinum á Keflavíkurflugvelli í febrúar 2026 og tekin í röntgenskoðun, sem leiddi í ljós aðskotahluti innvortis hjá þeim öllum. Annar maðurinn reyndist hafa 450 millilítra af kókaínvökva í 15 pakkningum innvortis og hlaut hann að lokum sjö mánaða dóm. Hin tvö voru par, hvort tveggja með um 900—1000 ml af kókaínvökva í um 30 pakkningum og hlutu þau 30 mánaða dóm hvort. Ekki sannað að þau væru samverkamenn Kólumbíumennirnir eru sagðir hafa gefið misvísandi skýrslur fyrir dómi; þeir hafi viðurkennt eigin þátt en neitað tengslum sín á milli framan af, þrátt fyrir að þau hafi öll dvalið á sama hóteli í París, flogið saman og sést saman á flugvellinum. Þrátt fyrir að vísbendingar væru um tengsl milli eins karlmannsins og hinna tveggja, sem voru par, svo sem símasamskipti, taldi dómurinn ekki sannað að sá hafi flutt efnin í félagi við hin tvö eða öfugt. Líklegra þótti að sami skipuleggjandi hefði skipulagt flutning fyrir hvern og einn án þess að brot þeirra tengdust innbyrðis sem samverknaður. Konan hafði haldið því fram að sá hafi verið skipuleggjandi innflutningsins. Þótt dómurinn hafnaði því að öll þrjú hefðu staðið saman að innflutningnum, þá játaði parið að hafa vitað hvort af öðru og ferðast saman vísvitandi með fíkniefnin. Þau hefðu gleypt hylkin saman í Kólumbíu og vissu hvort af fíkniefnum annars. Kókaínið og símar karlmannanna voru gerð upptæk til ríkissjóðs en kröfu um upptöku á síma konunnar var hafnað þar sem ekki var sannað að hún hefði notað símann í tengslum við brotið.
Fíkniefnabrot Dómsmál Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Sjá meira