Handbolti

Sjokkið breyttist í ævin­týri

Aron Guðmundsson skrifar
Elín Rósa hefur verið að gera það afar gott úti í atvinnumennskunni í Þýskalandi.
Elín Rósa hefur verið að gera það afar gott úti í atvinnumennskunni í Þýskalandi. Vísir/Ívar Fannar

Ís­lenska lands­liðs­konan í hand­bolta, Elín Rósa Magnús­dóttir, fékk sann­kallaða drauma­byrjun á at­vinnu­manna­ferli sínum í Þýska­landi. Hún reynslunni ríkari að loknu fyrsta árinu og stefnir á áfram­haldandi vel­gengni.

Elín Rósa gekk í raðir Blom­berg-Lippe í þýsku úr­vals­deildinni frá Val fyrir um ári síðan eftir að hafa unnið allt sem hægt er að vinna hér heima og meira til.

Mætti með sanni segja að fyrsta árið í at­vinnu­mennsku hafi ekki valdið von­brigðum því með sigri gegn Dort­mund í odda­leik tryggði Lippe sér Þýska­land­smeistara­titilinn. Elín Rósa var í stóru hlut­verki í veg­ferðinni að þeim titli.

„Maður hefði ekki geta beðið um betri byrjun,“ segir Elín Rósa í sam­tali við íþrótta­deild Sýnar. „Kannski erfitt að toppa þetta en við náttúru­lega bara höldum áfram og standardinn er settur hátt. Ótrú­lega mikil reynsla sem maður fékk út úr þessu fyrsta ári. Maður er mjög spenntur fyrir fram­haldinu.

Þetta er aðeins stærra en hérna heima eins og við var að búast. En þegar að maður kemur út þá er það alltaf smá sjokk. Maður fékk góðan grunn hérna heima með því að vinna ein­hverja titla, vera í ákveðnu um­hverfi í Val sem er geggjað. Það var gott stökk frá Val yfir í þýsku deildina en ég er mjög stolt af þessu.“

Íslendingasamfélagið hjálpaði

Skrefið í eitt af stóru liðunum í Þýska­landi frá Ís­landi var stórt en þá hjálpaði að hafa reynslu­boltana Díönu Dögg Magnús­dóttur og Andreu Jacob­sen í Ís­lendingaliðinu. Elín telur sig hafa þroskast mikið sem bæði mann­eskju og leik­mann á þessu eina ári.

Það er náttúru­lega bara pressa á að standa sig þegar að maður er komin í ein­hvern svona at­vinnu­manna­klúbb. Liðið, stelpurnar og klúbburinn tóku ótrú­lega vel á móti manni. Maður fann að þetta var lítill klúbbur. Allir að hjálpast að og það að hafa Ís­lendingana í liðinu, Díönu Dögg og Andreu, hjálpaði manni ótrú­lega mikið. Ég er mjög þakk­lát fyrir þær.“

Andrea Jacobsen hefur verið á mála hjá Blomberg Lippe eins og Elín Rósa og Díana en mun spila með ÍBV á næsta tímabili hér heima. vísir / hulda margrét

Þvílík reynsla

Ís­lenska kvenna­lands­liðið er nánast orðið áskrifandi að þátt­töku á stór­mótum og Elín Rósa er á því að það geri lands­liðinu gott að fleiri leik­menn reyni fyrir sér í at­vinnu­mennskunni.

„Deildin heima er eins og hún er. Það er alltaf skref fram á við þegar við fáum fleiri út. Frábært skref hjá nokkrum í ár að fara út. Ég held að það sé bara jákvætt fyrir ís­lenskan hand­bolta. Þetta er ákveðið hark. En þvílík reynsla sem maður fær út úr þessu sama hversu lengi maður er. Bara eftir eitt ár er ég alla­vegana með meira sjálf­s­traust, hef tekið skref fram á við að mínu mati. Ég held það hjálpi okkur í lands­liðinu alveg gríðar­lega mikið.“

Elín er einn af burðarásunum í íslenska landsliðinu

En í lífi at­vinnu­mannsins gefst aldrei of mikill tími til þess að fagna sigrum og titlum. Elín Jóna er nú farin aftur af landi brott til Þýska­lands því undir­búningstíma­bilið fyrir næsta tíma­bil fer að hefjast.

„Okkur langar auðvitað að fylgja þessu eftir. Sýna fram á að þetta hafi ekki verið eitt­hvað eitt ákveðið til­vik. Við náttúru­lega misstum líka af þýska bikarnum á síðasta tíma­bili. Við getum því klár­lega gert betur og það er alltaf meiningin. Að gera betur en síðast. Við getum alltaf gert það.“

Stefnan alltaf sett hærra og lengra

Elín á eitt ár eftir af nú­gildandi samningi sínum við Blom­berg-Lippe og er ekki mikið í því að horfa of langt fram veginn.

Íslendingarnir njóta sín vel í liði Blomberg-Lippe Blomberg-Lippe

„Maður stefnir alltaf aðeins lengra. Svo þarf maður að sjá hvað gerist. Mér líður alla­vegana mjög vel úti í Þýska­landi núna. Ég á eitt ár eftir af nú­gildandi samningi mínum og svo kemur þetta oft mjög hratt í ljós. Ég er ekkert að fara fram úr mér núna. Tek bara þetta tíma­bil og svo bara sjáum við hvað gerist.“

Viðtalið við Elínu Rósu sem sýnt var í Sportpakkanum í gærkvöldi má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×