Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. júní 2026 08:10 Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Vísir/Vilhelm Öryggisbrestur hjá Embætti héraðssaksókna er nú til skoðunar hjá Persónuvernd. Embættið tilkynnti sjálft um öryggisbrestinn sem varðar nöfn fimm einstaklinga sem sættu sakamálarannsókn og birtust í kynningarmyndbandi sem ísraelska fyrirtækið Cellebrite gerði um embættið.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar. Málið teljist sem öryggisbrestur sem beri lögum samkvæmt að tilkynna til stofnunarinnar. Farið verði yfir gögn málsins og í framhaldinu metið hvaða spurninga þurfi að spyrja. Viðurlög við slíkum öryggisbresti séu fangelsi í allt að tvö ár auk sekta. Fram kemur að myndbandinu hafi verið eytt eftir að málið kom upp. Cellebrite er ísraelskt tæknifyrirtæki sem selur lögreglu, rannsóknaryfirvöldum, leyniþjónustum, herjum og fyrirtækjum hugbúnað og búnað til að ná í, flokka og greina stafræn gögn úr símum, tölvum og öðrum tækjum. Málið sem um ræðir er nefnt Operation Racoon í kynningarmyndbandi ísraelska fyrirtækisins en þar lýstu starfsmenn embættis héraðssaksóknara lýsa því hvernig stafræn sönnunargögn og greiningartækni fyrirtækisins voru notuð við rannsóknina. Fram kom að um var að ræða peningaþvættismál en það er er enn til meðferðar hjá embætti héraðssaksóknara. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sagði í samtali við Vísi í síðustu viku að málið hafa áður ratað í fjölmiðla. Það hafi hafist árið 2018 og snúist um fjölda ungmenna sem voru fengin til að fara í banka og skipta íslenskum krónum yfir í evrur. Að sögn Ólafs komu rúmlega fimmtíu aðilar við sögu í þeim hluta málsins og höfðu þeir réttarstöðu sakbornings við rannsóknina. Um hafi að mestu verið að ræða Íslendinga. Fjárhæðirnar sem um ræðir eru miklar. Ólafur sagði að málið snúist um um 600 til 700 milljónir króna.
Persónuvernd Lögreglumál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira