Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Kjartan Kjartansson skrifar 29. júní 2026 13:51 Héraðsdómur Norðurlands sakfelldi manninn fyrir líkamsárás og nokkur ærumeiðandi ummæli í garð fyrrverandi sambýliskonu. Landsréttur taldi engin ókvæðisorðanna sem maðurinn notaði um konuna stórfelldar æurmeiðingar fyrir utan „svertingjatussu“. Með þeim hefði hann ætlað sér að smána konuna vegna útlits hennar og uppruna. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hafði ekki áhuga á að heyra mál manns sem var dæmdur fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína og kalla hana „svertingjatussu“. Maðurinn taldi málið varða stjórnarskrárvarið tjáningarfrelsi sitt.
Landsréttur staðfesti sextíu daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í febrúar yfir karlmanni á sjötugsaldri sem var ákærður fyrir líkamsárás og stórfelldar ærumeiðingar í garð fyrrverandi maka síns. Manninum var gefið að sök að hafa ráðist á konuna, gripið í upphandlegg hennar og aftan í háls og ýtt henni til og frá til þess að koma henni af landareign sem hann taldi sig eiga og hún hefði ekki hemild til þess að ganga um í ágúst 2023. Hann hafi jafnframt kallað hana „hóru“, „tussu“, „djöfulsins belju“ og „svertingjatussu“ auk fleiri álíka nafna. Sakfelling mannsins í héraði byggði á framburði konunnar, tveggja sjónarvotta og áverkavottorði. Í Héraðsdómi Norðurlands var maðurinn dæmdur fyrir ærumeiðingar vegna allra ummælanna. Landsréttur taldi „djöfulsins belju“, „hóru“ og „tussu“ hins vegar ekki teljast til stórfelldra ærumeiðinga. Aftur á móti teldist „svertingjatussa“ það vegna þess að ummælin beindust að útliti og uppruna konunnar. Sagði sýknu skipta sig miklu persónulega og atvinnulega Þessu vildi maðurinn ekki una og óskaði eftir því að Hæstiréttur tæki málið upp. Sakarefnið varðaði stjórnarskrárvarið tjáningarfrelsi hans og um leið æruvernd konunnar. Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum. - 233. grein b í hegningarlögum. Úrlausn Hæstaréttar hefði almennt gildi um afmörkun ummæla gagnvart ákvæði hegningarlaga um ærumeiðingar í garð maka eða fyrrverandi maka og hvernig það geti takmarkað tjáningarfrelsi borgaranna gagnvart nákomnum. Þá sagði maðurinn að það varðaði hann miklu, bæði persónulega og atvinnulega að Hæstiréttur hlýddi á málið og sneri dómnum við. Hann væri 61 árs gamall og aldrei komist í kast við lög. Hæstiréttur gat ekki séð af gögnum málsins að það hefði verulega almenna þýðingu sem réttlætti að hann tæki það upp. Beiðni mannsins var því hafnað.
Dómsmál Tjáningarfrelsi Kynbundið ofbeldi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira