Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar 28. júní 2026 09:30 Þetta esb rugl hefur skerpt þjóðina í að sjá hvað hún vill láta gerast hér á landi. Með eða á móti esb. Hún hefur vakið upp samræður um betra samfélag og vilja fólks til að breyta. Ríkisstjórnin þarf að gyrða sig í brók og gera eins og þær ætluðu fyrir okkur í upphafi. Búa til gott Ísland! Skapa aðstæður þar sem öllum líður vel. Þær konur geta gert svo miklu betur en að senda okkur í fangið á einhverri útlendri stofnun til að ákveða örlög okkar í framtíðinni! Við Íslendingar erum harðjaxlar í grunninn og getum svo margt þegar við stöndum saman! Frelsi og fullveldi Íslands er eitt af hornsteinum okkar samfélags. Íslendingar hafa ávallt viljað ráða sér sjálfir og komu einmitt á sínum tíma til þessarar eyju vegna þessa. Þjóðin hefur oftar en einu sinni barist fyrir því að verða fullvalda þjóð án erlendra afskipta. Það er eins núna. Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Allt mun breytast hér á landi í haust eftir þessar kosningar, bæði með jái eða neii. Ef við kjósum að eiga okkur sjálf áfram þá þurfum við að breyta mörgu eins og td.bankakerfinu sem er séríslenskt fyrirbæri með undarlegum lánaútreikningum. Hef átt húsnæði í Noregi og veit hvernig heilbrigð lán virka. Mikil og góð umræða hefur farið í gang hjá þjóðinni við þetta esb útspil ríkisstjórnarinnar. Þörf umræða um hvernig við viljum öll hafa Ísland og íslenskt samfélag. Það er jákvætt. Við getum breytt samfélaginu okkar sjálf og vitum betur hvaða breytingar þurfa fara í gang til þess. Án esb afskipta eða íþyngjandi reglugerða þaðan. Ekki gefast upp og halda að esb sé lausnin á öllum sviðum. - Frelsi okkar er svo dýrmætt! Höfundur er rithöfundur og bókaútgefandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Þetta esb rugl hefur skerpt þjóðina í að sjá hvað hún vill láta gerast hér á landi. Með eða á móti esb. Hún hefur vakið upp samræður um betra samfélag og vilja fólks til að breyta. Ríkisstjórnin þarf að gyrða sig í brók og gera eins og þær ætluðu fyrir okkur í upphafi. Búa til gott Ísland! Skapa aðstæður þar sem öllum líður vel. Þær konur geta gert svo miklu betur en að senda okkur í fangið á einhverri útlendri stofnun til að ákveða örlög okkar í framtíðinni! Við Íslendingar erum harðjaxlar í grunninn og getum svo margt þegar við stöndum saman! Frelsi og fullveldi Íslands er eitt af hornsteinum okkar samfélags. Íslendingar hafa ávallt viljað ráða sér sjálfir og komu einmitt á sínum tíma til þessarar eyju vegna þessa. Þjóðin hefur oftar en einu sinni barist fyrir því að verða fullvalda þjóð án erlendra afskipta. Það er eins núna. Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Allt mun breytast hér á landi í haust eftir þessar kosningar, bæði með jái eða neii. Ef við kjósum að eiga okkur sjálf áfram þá þurfum við að breyta mörgu eins og td.bankakerfinu sem er séríslenskt fyrirbæri með undarlegum lánaútreikningum. Hef átt húsnæði í Noregi og veit hvernig heilbrigð lán virka. Mikil og góð umræða hefur farið í gang hjá þjóðinni við þetta esb útspil ríkisstjórnarinnar. Þörf umræða um hvernig við viljum öll hafa Ísland og íslenskt samfélag. Það er jákvætt. Við getum breytt samfélaginu okkar sjálf og vitum betur hvaða breytingar þurfa fara í gang til þess. Án esb afskipta eða íþyngjandi reglugerða þaðan. Ekki gefast upp og halda að esb sé lausnin á öllum sviðum. - Frelsi okkar er svo dýrmætt! Höfundur er rithöfundur og bókaútgefandi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar