Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar 27. júní 2026 11:00 Það er mikið ofmat á samningsstöðu Íslands í mögulegum viðræðum um inngöngu landsins í Evrópusambandið að ætla að Ísland geti breytt leikreglum sambandsins. Fyrir það fyrsta eru Íslendingar brotabrot af íbúafjölda Evrópusambandsins, eða 0,08%. Til að setja þessar tölur í samhengi, þá er íbúafjöldi Kjalarness sem hlutfall af íbúum Reykjavíkur tíu sinnum hærra hlutfall en hlutfallslegur fjöldi Íslendinga af íbúafjölda Evrópusambandsins en svipað hlutfall og samanlagður fjöldi íbúa Bakkafjarðar og Raufarhafnar af fjölda Íslendinga. Í framhaldinu má spyrja hvaða áhrif íbúar sjávarbyggðanna tveggja hafa í raun á nýtingu fiskimiða í túnfæti byggðanna. Fyrirfram mætti ætla að íslenskir stjórnmálamenn hefðu meiri skilning á því að láta sjávarbyggðirnar njóta legu sinnar en t.d. ungverskir eða eistneskir stjórnmálamenn, en því miður er aðeins einn flokkur á Alþingi, Flokkur fólksins, sem ljær máls á því. Forysta annarra flokka á þingi vill litlar sem engar breytingar, jú, hækka eitthvað veiðigjöld eða lækka. Það á jafnvel við um þá sem ákafast berjast fyrir inngöngu í ESB en ætlast til þess á sama tíma að bandalagið breyti fiskveiðistefnu sinni fyrir eyríkið Ísland. Hverju þarf að breyta áður en sótt er um aðild? Til eru þeir sem segja að íslenska fiskveiðistjórnarkerfið sé meistaraverk og við eigum að hafa kassann úti þegar við kynnum það á erlendri grundu. Það er auðvitað undarlegt þar sem fyrir liggur dómur Hæstaréttar um að kerfið brjóti í bága við jafnræði borgaranna og að því beri að breyta og sömuleiðis liggur fyrir álit mannréttindanefndar SÞ um það sama sem stjórnvöld lofuðu að virða, m.a. með strandveiðum, en hafa síðan færst undan að halda loforðið. Núverandi reglur og framfylgd þeirra í sjávarútvegi eru með þeim hætti að lögbundið kvótaþak er ekki virt og það færir handhöfum veiðiheimilda rétt til þess að selja sjálfum sér afla langt undir raunvirði og vigta aflann með afar hagstæðum hætti. Það sem meira er er að þegar formaður fjárlaganefndar Alþingis spyr um uppgefið útflutningsverð fiskafurða upphefst mikill vandræðagangur hjá Skattinum og ekki liggja enn fyrir svör. Að óbreyttum reglum og við inngöngu í Evrópusambandið gætu erlendar matvælakeðjur á borð við Unilever mjög auðveldlega keypt upp stærstu sjávarútvegsfyrirtækin og flutt fiskinn óunninn til vinnslu erlendis. Þetta eru ekki einhverjar draugasögur, heldur eru dæmi um að innlend sjávarútvegsfyrirtæki geri þetta nú þegar. Vinnslustöðin lokaði á síðasta ári saltfiskvinnslu í Eyjum en jók síðan saltfiskvinnslu í fyrirtæki sínu í Portúgal. Eigendur einstakra sjávarútvegsfyrirtækja hafa kallað eftir erlendri fjárfestingu, með öðrum orðum tækifæri til að selja erlendum aðilum fyrirtækin og þar með fiskveiðiheimildir. Innganga í sambandið opnar á slíkar sölur þannig að að óbreyttu gæti Ísland orðið fyrir sömu áhrifum og brothættu sjávarbyggðirnar hringinn í kringum landið. Núverandi fiskveiðiráðgjöf er ekki að gera sig en hún hefur nánast undantekningarlaust leitt til minni veiði í öllum nytjategundum þrátt fyrir að farið hafi verið í einu og öllu eftir ráðgjöfinni. Heilu stofnarnir eru ónýttir, m.a. innfjarðarrækja, humar, lúða, hörpudiskur og djúpkarfi. Ráðgjöf Hafró er af nákvæmlega sama meiði og sú sem Evrópusambandið notast við með svipuðum „árangri“ og hér. Við inngöngu í Evrópusambandið kæmi úthlutunin ekki frá innlendum ráðherra heldur ESB. Hér hefur það reynst talsverð brekka að breyta út af ráðgjöfinni þrátt fyrir algert árangursleysi og að verið sé að minnka veiðar á stofnum sem augljóslega glíma við fæðuskort. Það má búast við því að brekkan til breytinga verði mun brattari við inngöngu í sambandið og jafnframt geta landsmenn afskrifað hvalveiðar. Breytingarnar sem þarf að gera Setja skýrt auðlindaákvæði um fiskimiðin í stjórnarskrá. Lækka kvótaþakið og framfylgja því. Aðskilja veiðar og vinnslu. Tryggja að fiskur fari ekki óunninn úr landi nema hann hafi verið boðinn upp innanlands áður. Setja fyrirvara við núverandi ráðgjöf ESB og sérstaklega með tilliti til veiða á grunnsævi. Gera kröfu um að eigendur og stjórnendur í útgerð séu Íslendingar eða hafi „raunveruleg tengsl við landið“ . Allar ofangreindar breytingar þarf að tryggja hvort sem landið fer inn í ESB eður ei og eru sumar hverjar samhljóða þeim reglum sem eru í gildi í Danmörku, m.a. um eignarhald áhafnar. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar