Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 26. júní 2026 07:33 Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið þegar samið er um deilistofna í Norður-Atlantshafinu. Þá fundi hafa allajafna setið fulltrúar Íslands, Noregs, Færeyja og Evrópusambandsins auk fulltrúa Bretlands eftir að Bretar sögðu skilið við sambandið. Ríki innan sambandsins, sem eiga hagsmuna að gæta eins og til dæmis Írlands, Danmerkur og Hollands, sitja hins vegar ekki við borðið heldur bíða frammi á gangi og reyna síðan að afla frétta þegar gert er hlé á fundarhöldunum. Fréttirnar reyna þeir að fá frá fulltrúum landanna sem ekki eru í Evrópusambandinu, þar a meðal Færeyja sem eru ekki fullvalda ríki en fara hins vegar með stjórn eigin sjávarútvegsmála ólíkt þeim sjálfum, enda engar fréttir í boði hjá fulltrúum sambandsins. Með öðrum orðum yrði Ísland í sömu stöðu innan Evrópusambandsins og þau ríki sem þar eru innanborðs í dag. Okkar fulltrúar þyrftu þannig að hanga frammi á gangi og bíða eftir fréttum af viðræðum um mikilvæga hagsmuni okkar sem við fengjum ekki frá sambandinu og yrðum að vonast til að fá frá þeim ríkjum sem ólíkt okkur ættu sæti við borðið. Hliðstætt á við um ýmsar alþjóðastofnanir eins og Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) þar sem Evrópusambandið kemur fram fyrir hönd ríkja þess og þau hafa þannig ekki með sjálfstæða rödd í þeim efnum ólíkt Íslandi. Á meðan við erum utan sambandsins. Vert er að hafa þetta í huga þegar talað er um að Ísland þurfi að ganga í Evrópusambandið til þess að fá sæti við borðið innan þess. Mikilvægt er einnig að hafa í huga hvað fælist í íslenzku sæti við borðið innan Evrópusambandsins. Hér áður töluðu hérlendir Evrópusambandssinnar um að ganga þyrfti í sambandið til þess að hafa þar áhrif. Síðan var einungis farið að tala um sæti við borðið. Vægi ríkja innan Evrópusambandsins fer enda fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Einkum í ráðherraráði þess, valdamestu stofnuninni. Þar yrði vægi Íslands fyrir vikið aðeins um 0,08% eða yfirfært á Alþingi á við 5% hlutdeild í einum alþingismanni. Meðal annars í ákvörðunum um orku- og sjávarútvegsmál. Um þetta yrði ekki samið í aðlögunarviðræðum. Við yrðum í mesta lagi hjáróma rödd innan sambandsins vegna þess að þannig eru einfaldlega reglurnar innan þess. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar