Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júní 2026 15:37 „Þetta er auðvitað leiðinlegt og sorglegt ef þetta er að hafa bein áhrif á mótið á Króknum,“ segir framkvæmdarstjóri Knattspyrnuféla Akureyrar. Tröll.is Framkvæmdastjóri KA og mótsstjóri N1-mótsins á Akureyri segir mótinu ekki stillt upp í samkeppni við Króksmótið á Sauðárkróki. N1-mótið fyrir sjötta flokk kvenna í knattspyrnu verði til í framhaldi af N1-móti stráka á sama aldri sem haldið hefur verið fjörutíu ár.
Mótsstjóri Króksmótsins á Sauðárkóki, Guðbjörg Óskarsdóttir, sagði minni þátttöku mótsins meðal annars af samkeppni við N1-mótið á Akureyri fyrir sama aldurshóp stúlkna. Hún segir lið og fjölskyldur keppenda yfirleitt velja eitt mót úti á landi yfir sumarið til þess að sækja og það hafi því mikil áhrif á minni mót þegar um sömu keppendur er að ræða. Þröstur Magnússon, formaður Barna- og unglingaráðs Tindastóls segir stjórn félagsins þurfa að endurskoða mótahald hjá sér vegna tekjumissis í kjölfar dræmrar þáttöku Krókmótsins í ár. Óljóst er hvort að mótið verði haldið að ári liðnu. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA og mótstjóri N1-mótsins, segist í samtali við Vísi hafa rætt við forsvarsmenn Tindastóls, ásamt mótstjórn, síðastliðinn vetur varðandi mótin tvö. Hann segist skilja þeirra sjónarmið en það eina sem hefði verið í stöðunni væri að hætta við mótið. Mótstjórn geti ekki tekið endanlega ákvörðun í líkum málum en að hann hafi rætt málin við stjórn knattspyrnudeildarinnar hjá KA sem hafi tekið ákvörðun um að halda samstarfinu við N1 áfram og þar af leiðandi einnig mótið. Hann segir ákall vera frá samfélaginu um að halda sambærilegt mót fyrir stelpur og stráka. Félagið hafi í fyrra tekið á móti ríflega fimm hundruð stelpum í tæpum hundrað liðum. Í ár séu um 105 lið skráð á mótið en skráningu sé ekki lokið og því gæti enn bæst í hópinn. Langauðveldast hefði verið fyrir félagið að halda N1-mót í kvennaflokki um helgina næstu, í beinu framhaldi af N1-mótinu í karlaflokki, en tekin hefði verið ákvörðun um að halda mótið í ágúst, frekar en júní eða júlí, til þess að mótið væri ekki beint til höfuðs Króksmótinu. Sævar segist hafa rætt við stjórn Tindastóls og látið vita af niðurstöðunni. Ákvörðunin hafi ekki verið tekin „til þess að hjóla í Tindastól.“ Félagið hafi ákveðið að stækka samstarf sitt við N1 og þá sé eðlilegt að mót fyrir stelpurnar á sama aldri sé haldið í kjölfarið. „Í því samfélagi sem við erum í dag, þá sé það bara mjög eðlilegt að N1 komi að móti fyrir stráka og stelpur,“ segir hann. Hann segir að það sé ekki einsdæmi að tvö mót fyrir sama aldursflokk séu haldin sama ár. „Ég meina fimmti flokkur kvenna er með TM-mót í Vestmannaeyjum og Símamót í Reykjavík sko.“ Hann segir N1-mótinu ekki stillt upp í samkeppni við Króksmótið aftur á móti séu iðkendur og þjálfarar komnir með tvo valmöguleika. „ Þetta er auðvitað leiðinlegt og sorglegt ef þetta er að hafa bein áhrif á mótið á Króknum,“ segir hann. Aðspurður hvort KA bjóði þjálfurum hótelgistingu segir Sævar félagið ekki borga gistingu fyrir þjálfara. Félög heyri þó í mótshöldurum og þau séu stundum milliliðir hjálpi til við að útvega gistingu. Þau bjóði hins vegar þjálfurunum, bæði á stelpu- og strákamótinu, í Skógarböðin á meðan krakkarnir eru á tónleikum sem mótið stendur fyrir.
Börn og uppeldi Fótbolti Akureyri Skagafjörður Tindastóll KA Íþróttir barna Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira