Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar 22. júní 2026 14:02 Á þeim árum sem ég hef starfað á vettvangi Norðurlandaráðs hafa áherslur ráðsins tekið töluverðum breytingum. Á undanförnum árum hafa öryggis- og varnarmál verið ofarlega á baugi, ekki síst í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Samstaða Norðurlanda með úkraínsku þjóðinni hefur verið skýr og samstarf landanna á sviði öryggis hefur aldrei verið nánara. Ég og íslensku þingmennirnir í Norðurlandaráði höfum einnig lagt ríka áherslu á að Grænland og Færeyjar fái sjálfstæða stöðu innan ráðsins. Það er mikilvægt að rödd allra þjóða á Norðurlöndum fái að heyrast og að samstarfið endurspegli betur þá fjölbreytni sem einkennir norræna samfélagið. Þótt öryggismálin hafi verið fyrirferðarmikil hefur sjálfbærni jafnframt verið eitt af lykilviðfangsefnum Norðurlandaráðs. Nú sit ég í sjálfbærninefnd ráðsins og þar höfum við meðal annars fjallað um hraðtísku, textílúrgang og hvernig draga megi úr þeim umhverfisáhrifum sem fylgja sívaxandi neyslu. Á hverju ári eru allt að 600 þúsund tonn af textílvörum brennd í Evrópu. Föt eru að meðaltali aðeins notuð sjö til átta sinnum áður en þeim er hent og innan við eitt prósent textíls er endurunnið í nýjar vörur. Á sama tíma heldur hraðtískan áfram að vaxa og sífellt er erfiðara fyrir neytendur að greina á milli raunverulega sjálfbærra vara og þeirra sem markaðssettar eru með grænþvotti og villandi skilaboðum. Vissulega standa Norðurlönd framarlega í loftslags- og umhverfismálum miðað við mörg önnur svæði heims. En neysla okkar er engu að síður yfir heimsmeðaltali og hér eiga heimkynni sín nokkrar af stærstu tískukeðjum heims. Því fylgir ábyrgð. Tækifæri í Svansvottun Ef Norðurlönd ætla að vera leiðandi afl í grænum umskiptum verðum við að sýna það í verki. Það krefst aukins gagnsæis gagnvart neytendum, skýrari krafna til framleiðenda og öflugri aðgerða gegn villandi markaðssetningu og grænþvotti. Flest okkar þekkja Svaninn, opinbert umhverfismerki Norðurlanda sem hefur verið notað frá árinu 1989. Svansmerkið gerir kröfur til alls lífsferils textílvöru, allt frá hráefnavinnslu til förgunar. Þrátt fyrir mikla þekkingu almennings á merkinu eru enn tiltölulega fáar textílvörur sem uppfylla skilyrði þess. Kannanir sýna að 97% Norðurlandabúa þekkja Svansmerkið og meira en helmingur er tilbúinn að greiða meira fyrir vörur sem bera það. Þar felast mikil tækifæri fyrir bæði neytendur og framleiðendur. Þess vegna fagna ég því að Norðurlandaráð hafi nýlega samþykkt einróma tilmæli um vistvænni tískuiðnað. Í þeim er því meðal annars beint til norrænna ríkisstjórna að tryggja neytendum betri upplýsingar, berjast gegn grænþvotti og villandi markaðssetningu og stuðla að góðum starfsskilyrðum í textíliðnaði. Sérstaklega er ánægjulegt að frumkvæðið hafi komið frá Norðurlandaráði æskunnar og síðan unnið áfram í sjálfbærninefnd ráðsins. En lausnin liggur ekki aðeins hjá stjórnvöldum eða fyrirtækjum. Við sem neytendur getum líka lagt okkar af mörkum. Sem kona sem hefur alltaf haft gaman af fallegum fötum ætla ég að leyfa mér að enda á einföldu ráði: Förum vel með fötin okkar. Lögum þau þegar þess þarf, gerum við þau, nýtum þau lengur og gefum þau áfram þegar við erum hætt að nota þau. Og svo er fátt betra fyrir bæði budduna og umhverfishjartað en að kaupa notað eða „pre-loved“ ❤️ Eitt er ljóst; Norðurlöndin hafa alla burði til að verða leiðandi í sjálfbærari tískuiðnaði. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Umhverfismál Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar