„Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. júní 2026 20:00 Margrét Sif Sigurðardóttir lyfjafræðingur og tískudrottning spjallaði við blaðamann um tískuna og klæðaburð. Aðsend „Það skiptir mig held ég bara mestu máli að klæðast fötum sem gleðja mig og það er ekki verra ef þau gleðja aðra í leiðinni,“ segir hin 32 ára gamla Margrét Sif Sigurðardóttir sem starfar sem lyfjafræðingur hjá Alvotech og er mikill tískuunnandi.
Margrét Sif kaupir gjarnan notaðar flíkur og er dugleg að sauma, breyta og bæta flíkur og gera þær algjörlega einstakar. Hún segist tengjast flíkum meiri tilfinningalegum böndum en góðu hófi gegnir en blaðamaður ræddi við Margréti Sif um tískuna, fataskápinn og fleira. Margrét Sif er litaglöð og smart.Aðsend Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? Hvernig hún nær að fanga tíðarandann og setur svip sinn á samtímann. Mér finnst æðislegt að skoða gamlar myndir og sjá hvað var móðins þá stundina. Margrét Sif er dugleg að sauma út í flíkur og breyta þeim.Aðsend Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju? Ég held ég verði að segja gallajakkinn minn sem ég er að sauma út í með mjög svo frjálsri aðferð og hefur verið verk í vinnslu í þrjú ár. Svo verð ég að nefna tvær peysur sem systir mín annars vegar heklaði og hins vegar prjónaði úr garni sem hún spann og litaði. Peysurnar hafa meðal annars gegnt því hlutverki að vera hero-peysurnar hennar Diljár í sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað. Ég gæti nefnt margar í viðbót enda tengist ég flíkum meiri tilfinningalegum böndum en góðu hófi gegnir. Peysur sem systir Margrétar gerði eru í miklu uppáhaldi.Aðsend Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni? Já og nei. Ég get eytt miklum tíma í það og hef gaman af en svo hendist ég stundum bara í eitthvað klassískt fit sem ég veit að klikkar ekki. Margrét hefur gaman að því að setja saman flíkur.Aðsend Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Litríkum og skemmtilegum. Vinnufélagi minn flokkar stundum fötin sem ég mæti í vinnuna eftir því hvort þau séu gardínur eða ekki. Svo ætli ég verði ekki líka að segja að fatastíllinn minn sé líka stundum eins og gardína. Litrík, skemmtileg og stundum eins og gardína segir Margrét Sif.Aðsend Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá? Kannski ekki á síðustu árum en ég hef orðið litríkari með árunum og ekki gott að segja hvar það endar. Ég kaupi meira notað og breyti og bæti föt og spái meira í úr hvaða efnum fötin eru. Margrét Sif spáir mikið í efni og endingu flíka.Aðsend Nýturðu þess að klæða þig upp? Já ég geri það nú oftast, bæði hversdagslega og fyrir fínni tilefni. Margrét Sif nýtur þess bersýnilega að klæða sig upp.Aðsend Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði? Það skiptir mig held ég bara mestu máli að klæðast fötum sem gleðja mig og það er ekki verra ef þau gleðja aðra í leiðinni. Gleðin er í fyrirrúmi í klæðaburði Margrétar Sifjar. Aðsend Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni? Héðan og þaðan, meðal annars frá Tiktok, Instagram og ýmsu í umhverfinu. Margrét Sif sækir tískuinnblástur á samfélagsmiðla. Aðsend Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði? Ég get alls ekki klæðst ferskjulituðum eða fölbleikum, það fer mér hræðilega illa. Svo forðast ég eins og heitan eldinn að kaupa peysur úr akrýl, næstum jafn mikið og ég forðast að kaupa óþægilega skó. Akrýl peysur og óþægilegir skór eiga ekki heima í fataskápi Margrétar Sifjar.Aðsend Áttu eitthvað eftirminnilegt tískuslys? Það má deila um það hvort crocs séu tískuslys en það var bókstaflegt tískuslys og reyndar líka umhverfisslys þegar Silla vinkona mín týndi crocs skónum sínum í jökulá á Hornströndum. Spilar álit annarra eitthvað hlutverk í þínu fatavali? Það gerði það alveg 100 prósent þegar ég var yngri en ég held að ég sé að mestu leyti frelsuð úr viðjum þess. Stundum finnst mér gaman að hugsa til þess að aðrir horfi á mig og hugsi að þau myndu sko aldrei klæðast því sem ég klæðist. Margrét Sif á einstaklega fallegt peysusafn og er óhrædd við að skera sig úr.Aðsend Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju? Það fyrsta sem kom upp í hugann er kjóllinn sem ég klæddist í útskriftinni minni úr menntaskóla og kannski fyrir þær sakir hvað hann er í raun óeftirminnilegur. Ég fór með mömmu, sem er flugfreyja, til New York og eyddi mörgum klukkustundum í að finna hinn fullkomna kjól fyrir útskriftina. Í áhöfninni með mömmu var Jónsi í svörtum fötum sem reyndi að sannfæra mig um að eftir tuttugu ár væri ég löngu búin að gleyma í hverju ég útskrifaðist. Ég endaði á að velja hvítan og einstaklega venjulegan kjól úr Forever 21 sem ég var alls ekki sátt með. Ég held ég hafi ekki tekið neinar myndir af mér á útskriftardaginn en hér er ég tólf árum seinna, ennþá að hugsa um þetta. Hvað finnst þér heitast fyrir sumarið? Kjólar, pils, gulur, rauður, grænn og blár. Svo finnst mér hvítt alltaf hot á sumrin. Hvítu klæðin eru sumarleg.Aðsend Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku? Ég mæli með að máta fötin sem þú átt heima og leika þér að blanda einhverju saman sem þér myndi kannski ekki detta í hug að gera í fyrstu. Svo mæli ég með að taka myndir af þér þegar þú ert sátt/ur með fittið og þá geturðu leitað í gömlum myndum þegar þig vantar hugmyndir. Þá má segja að þú sért tískuáhrifavaldur í eigin lífi! Hin litaglaða Margrét Sif er tískuáhrifavaldur í eigin lífi!Aðsend
Tískutal Tíska og hönnun Mest lesið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Dóttir Obama í íslenskri hönnun Heitustu tískutrendin í sumar „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Buxur með opið klof vöktu athygli Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Minnist föður síns með verðmætu verkefni Aðalpæjur landsins komu saman Dreifði ættjarðarástinni til London og Parísar Gellur elska hönnun Tíundi bekkur slys í heild sinni Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Gusugleði í Vesturbæjarlaug Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Þessi sigruðu Met Gala Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Sjá meira