Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar 22. júní 2026 09:31 Þann 29. ágúst greiðum við atkvæði um hvort hefja eigi viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Herferðin „SJÁ“, „Já til að sjá“, byggir á einfaldri og þægilegri hugmynd: að Íslendingar eigi ekki að gera upp hug sinn um aðild fyrr en samningur liggur á borðinu. Fyrst sjáum við samninginn, svo ákveðum við okkur. Þetta hljómar varfærnislega og skynsamlega. Það er ein veigamikil brotalöm á þessari nálgun. Stærstu spurningarnar um aðild ráðast ekki af samningi sem á eftir að semja. Þær eru þegar útkljáðar, í sáttmálum og lögum Evrópusambandsins, löngu áður en nokkur Íslendingur sest að samningaborði. Þess vegna setti ég upp síðuna jatiladfela.com. Hún er andsvar, og já, skopstæling, við „Já til að sjá“, en erindi hennar er fullkomlega alvarlegt: það sem mestu skiptir geturðu séð strax. Tökum nokkur dæmi um það sem þegar liggur fyrir, í sáttmálum sambandsins, í lögum þess og í tölum sem hver sem er getur flett upp, óháð því hvað kæmi út úr viðræðum. Atkvæðavægi Íslands í ráðherraráði ESB yrði um 0,09%, enda ræðst vægið af íbúafjölda í kerfi aukins meirihluta. Á Evrópuþinginu fengi Ísland sex þingsæti af 720. Þetta er einföld stærðfræði og fyrirliggjandi sætaskipan. Stjórn fiskveiða, nánar tiltekið verndun fiskistofna, sem mestu varðar fyrir Ísland, fellur undir einkavald sambandsins samkvæmt 3. grein (1)(d) sáttmálans um starfshætti ESB. Þar fengi Ísland ekkert neitunarvald. Ekkert aðildarríki hefur varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Núll. Hver sem flettir upp 3. grein sáttmálans sér það sjálfur. Loks er talan sem oft er slegið fram: að Ísland hafi þegar tekið upp „um 75%“ af reglum ESB gegnum EES og því sé lítið eftir óséð. Sú tala miðar við annan nefnara en sú sem ég nota. Þegar litið er til allra ESB-gerða er hlutfallið nær 20–25%. Mismunurinn liggur í því hvað er talið með. Á jatiladfela.com er hver fullyrðing tengd heimild og merkt eftir vissustigi, staðfest, rökstutt eða mat. Þú þarft ekki að taka mín orð trúanleg frekar en nokkurs annars. Heimildirnar liggja frammi á evropumalin.is og hver sem vill má rekja þær til frumheimilda. Samningur skiptir auðvitað máli, upp að vissu marki. Aðlögunartími getur lengst eða styst og ýmis útfærsluatriði ráðast af viðræðum. Það breytir hinsvegar ekki grunninum: valdinu yfir fiskimiðunum, vægi Íslands í atkvæðagreiðslum í Brussel, og því að engin varanleg undanþága frá sjávarútvegsstefnunni stendur til boða. Margir kalla það varfærni að bíða eftir samningnum áður en afstaða er tekin. Biðin bætir engu við þekkingu okkar á þessum atriðum, því þau liggja þegar fyrir. Ég sé enga ástæðu til að geyma svarið fram í ágúst. Skoðið tölurnar sjálf. „SJÁ“ vill að við sjáum áður en við tökum afstöðu, gott og vel. Þá skulum við byrja á því sem þegar blasir við. Höfundur er fullveldissinni, ritstjóri evropumalin.is og stendur að baki jatiladfela.com Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar