Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar 22. júní 2026 07:00 Það verður að viðurkennast að það var ansi góð tilfinning síðastliðinn föstudag þegar þingfundum Alþingis var frestað og þingið fór í sumarhlé. Bros var á vörum þingmanna sem tókust í hendur, féllust í faðma, þökkuðu fyrir samstarfið í vetur og óskuðu samstarfsfólki sínu gleðilegs sumars og öruggrar heimferðar. Þetta var talsvert önnur stemning en síðastliðið sumar, þegar þingfundum lauk um miðjan júlí eftir að forseti Alþingis þurfti að beita 71. grein þingskapa til að binda enda á umræður um veiðigjöld og ljúka þar með lengsta málþófi í sögu þingsins. Fulltrúar bæði stjórnar og stjórnarandstöðu hafa síðan þá talað opinberlega um að draga þurfi lærdóm af síðasta þingvetri og koma í veg fyrir að þannig málþóf endurtaki sig. Það græðir enginn á slíku ástandi og það bitnar á ásýnd Alþingis. Það er hagur okkar allra að Alþingi virki fyrir Ísland. Á því berum við í stjórn og stjórnarandstöðu sameiginlega ábyrgð. Í vetur má svo sannarlega segja að Alþingi hafi virkað fyrir Ísland. Ríkisstjórnin lagði fram metnaðarfulla en hófsama þingmálaskrá. Ráðherrar lögðu sig fram um að leggja mál tímanlega fram svo þingnefndir hefðu góðan tíma til að fjalla um þau. Þingnefndir unnu af metnaði og fulltrúar meiri- og minnihluta tóku virkan þátt í að betrumbæta frumvörp, þannig að góð mál yrðu enn betri, Íslandi til heilla. Afraksturinn lét ekki á sér standa. Alls voru 127 frumvörp og þingsályktanir samþykkt á þingvetrinum, sem er vel yfir meðalfjölda á venjulegum þingvetri. Gæði þingsins eru þó ekki mæld í fjölda mála einum og sér, heldur í gæðum lagasetningar og þeim áhrifum sem málin hafa á íslenskt samfélag. Það má segja að þingveturinn hafi einkennst af málum sem eiga það sameiginlegt að styrkja íslenskt samfélag. Við erum að styrkja efnahag Íslands með því að helminga halla ríkissjóðs með fyrstu fjárlögum nýrrar ríkisstjórnar og leggja í kjölfarið fram fjármálaáætlun sem markar skýra leið að hallalausum fjárlögum árið 2027 og út tímabil áætlunarinnar. Það yrðu fyrstu hallalausu fjárlögin í tæpan áratug. Ríkisstjórnin hefur einnig samþykkt mál sem leggja grunninn að viðsnúningi í rekstri með því að einfalda regluverk, ýta undir verðmætasköpun, sameina stofnanir og draga úr kostnaði. Í vetur lagði ríkisstjórnin einnig fram atvinnustefnu til ársins 2035, samgönguáætlun var samþykkt og stofnun innviðafélags sem mun leggja grunn að stórsókn í innviðafjárfestingum. Slíkar fjárfestingar styðja við atvinnulíf, verðmætasköpun og sterkara Ísland til framtíðar. Sterk þjóð stendur með fólkinu sínu. Samhliða áherslu á ábyrga efnahagsstjórn og verðmætasköpun höfum við haft húsnæðis- og velferðarmálin í forgrunni. Þar má nefna sérstakt þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila, að lífeyrir fylgi launaþróun, lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og húsnæðispakka 1 og 2 og svona mætti lengi áfram telja. Stjórnarandstaðan fékk líka í gegn góð mál í þinglokunum. Þar má nefna mál sem snúa að auknu frelsi þegar kemur að dreifingu ösku látinna ástvina, lengingu á gildistíma ökuskírteina eldra fólks og þingsályktun um að fela atvinnuráðherra að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum á Íslandi, með sérstakri áherslu á aðgang að auðlindum. Svona á Alþingi að virka fyrir Ísland. Með samhentri ríkisstjórn sem vinnur fyrir fólkið í landinu og öflugum hópi þingmanna sem vinnur þvert á flokka af heilindum í þágu þjóðarinnar. Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ari Sigurjónsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar