Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar 21. júní 2026 19:30 Þann 29. ágúst munu Íslendingar kjósa um hvort hefja skuli aðildarviðræður við Evrópusambandið. ESB-sinnar telja komið að því að hefja aðildarumræðuna á ný þrátt fyrir að síðasta tilraun hafi strandað þegar stuðningurinn reyndist ekki nægur og aðildarferlið rann út í sandinn. Aðildarsinnar, í dag eins og síðast, eru í erfiðleikum með að færa sannfærandi rök fyrir því hvers vegna það væri gott fyrir þjóðina að ganga í ESB. Helstu rökin eru þau að við eigum að „sjá samninginn“ og vonast eftir því að ESB bjóði okkur eitthvað sem engin önnur þjóð hefur fengið. Af hverju það ætti að gerast hefur enginn getað útskýrt með sannfærandi hætti, enn sem komið er. Efnahagsleg rök fyrir inngöngu virðast fá og fátækleg, nema það helst að krónan sé ónýt. Samt var að birtast skýrsla sem ríkisstjórnin sjálf lét gera um kosti og galla á upptöku evru, þar sem ekki tókst að sýna fram á með óyggjandi hætti að upptaka á evru bæti okkar stöðu þegar á heildina er litið. Munu lífskjör okkar raunverulega batna við inngöngu í ESB? Það hlýtur að vera ein mikilvægasta spurningin sem við verðum að svara áður en við tökum svona afdrifaríka ákvörðun. Síðustu áratugi undir okkar eigin stjórn hafa lífskjör á Íslandi batnað til muna. Við erum oftast í efstu sætunum í nánast öllum lífskjara- og velmegunarmælingum óháðra aðila. Þegar við notum t.d. kaupmáttarjafnvægi (PPP) sem mælir hversu langt launin duga miðað við verðlag í landinu, þá kemur í ljós að Ísland er í 8-10 sæti. Noregur og Danmörk eru fyrir ofan okkur, en síðan neðar eru m.a. Svíar, Finnar og Þjóðverjar. Við erum með sterkt velferðarkerfi (enn sem komið er) og öflugt atvinnulíf og höfum yfirráð í sjávarútvegi, orkumálum og öðrum lykilþáttum samfélagsins. Evrópusambandið stendur frammi fyrir ýmsum erfiðum og torleysanlegum áskorunum: hægum hagvexti, aukinni skuldsetningu margra ríkja, flóknu reglugerðarumhverfi og ágreiningi um innflytjendamál. Við munum greiða meira til ESB en við fáum til baka, þar sem Ísland stendur mun betur fjárhagslega en flest önnur ríki í ESB. Nauðsynlegt verður að fjölga í opinberum störfum til að sinna öllum þeim skyldum og kvöðum sem aðild fylgja. Það hlýtur að þýða annaðhvort hærri skatta, minni þjónustu eða aukna skuldsetningu. EES-samningurinn veitir okkur þegar víðtækan aðgang að evrópskum mörkuðum. Hvers vegna ættum við að vera að hrófla við einhverju sem gengur vel ef ávinningurinn af slíku er afar óljós og við missum stjórn á mörgum mikilvægum sviðum? Að lokum snýst þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fyrst og fremst um að halda í okkar fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt. Ísland er lítið ríki á alþjóðlegum mælikvarða, en sagan sýnir að þegar við Íslendingar fáum að stjórna okkur sjálfum þá vegnar okkur best. Við erum lítil þjóð, með stór tækifæri, höldum í fullveldið, treystum eigin styrk og byggjum enn betra Ísland á okkar eigin forsendum. Höfundur er meðlimur í Heimssýn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar