Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar 20. júní 2026 16:30 Þann 18. Júní var haldinn stofnfundur SJÁ félagasamtaka á Kjarvalsstöðum. Rúmlega 300 manns mættu á viðburðinn, fólk úr ólíkum áttum en með eitt sameiginlegt markmið: Að segja já til að sjá þann 29. ágúst. Og sólin skein. Íslensk stjórnmálaumræða hefur lengi einkennst af því að fólk skiptist í fylkingar áður en samtalið hefst. Afstaða er oft mótuð af gömlum skoðunum, flokkslínum eða hræðslu við breytingar. En hvernig getum við tekið upplýsta ákvörðun um framtíð landsins ef við viljum ekki einu sinni skoða alla valkosti? Það er einmitt þar sem SJÁ kemur inn. Markmiðið er ekki að segja fólki hvað það eigi að hugsa, heldur að hvetja það til að kynna sér staðreyndir, hlusta á ólík sjónarmið og taka upplýsta afstöðu. Það var kannski táknrænt að stofnfundur SJÁ skyldi fara fram á Kjarvalsstöðum. En Kjarval var listamaður sem hætti aldrei að skoða, spyrja og sjá hlutina frá nýjum sjónarhornum. Hann sótti innblástur út í heim en kom alltaf aftur heim með nýja sýn á landið sitt. Það er þessi hugsun sem mér finnst skipta máli í umræðunni um framtíð Íslands. Ekki að allir séu sammála heldur að við séum tilbúin að kynna okkur málin áður en við tökum afstöðu. Því áður en þjóð segir nei eða já, ætti hún að fá tækifæri til að sjá. Við sem stofnuðum SJÁ komum úr ólíkum áttum en eigum það öll sameiginlegt að telja mikilvægt að Íslendingar fái tækifæri til að kynna sér af eigin raun hvað aðildarsamningur við Evrópusambandið myndi fela í sér. Við vildum skapa vettvang þar sem hægt er að ræða framtíð Íslands á opinn og uppbyggilegan hátt óháð stjórnmálaskoðunum. Markmið okkar er að stuðla að upplýstri umræðu og skapa rými fyrir góð samtöl um eitt stærsta framtíðarmál íslensku þjóðarinnar. Þetta var mikilvæg stund á Kjarvalsstöðum og kannski enn mikilvægari en við áttum okkur á. Sumt sér maður betur þegar litið er til baka. Það er okkar von að SJÁ verði öflug hreyfing fólks, um allt land, sem vill leggja sitt af mörkum. Við trúum því nefnilega að þegar fólk kemur saman, hlustar hvert á annað og ræðir málin af virðingu, þá gerast góðir hlutir. Við hlökkum til að eiga samtalið við jákvætt fólk í allt sumar. Höfundur er framkvæmdastjóri SJÁ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar