Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 19. júní 2026 16:43 Úrræðið mun rísa á Hólmsheiði. Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. Alþingi samþykkti frumvarp til laga um nýja stofnun fyrir fólk sem þarf að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn. Þessi hópur hefur hingað til fallið milli skips og bryggju í kerfinu, hafa þótt ógn við velferð annarra en ekki verið hægt að vista hann til frambúðar innan fangelsa.
Drög frumvarpsins voru kynnt í nóvember árið 2025 í kjölfar nokkurra alvarlegra mála sem upp höfðu komið. Eitt þeirra mála er morð Yms Arts Runólfssonar á móður sinni árið á undan sem vakti mikinn óhug í samfélaginu. Ymur myrti hana mánuði eftir að hafa losnað úr fangelsi. Hann hafði þá nýlokið tveggja ára afplánun fyrir að hafa stungið móður sína. Við sakfellingu hans fyrir morðið í Héraðsdómi Reykjavíkur var honum ekki gert að sæta refsingu heldur öryggisvistun. Fyrir dómi lýsti Ymur því að ekkert hefði beðið hans þegar hann losnaði úr fangelsi og það varð þannig úr að hann flutti inn til móður sinnar. Úrræðið mun rúma allt að sextán einstaklinga sem þurfa sérhæfða þjónustu, er gert að sæta öryggisgæslu en er ekki talið viðeigandi að vista í fangelsi. Ekkert slíkt úrræði er til í dag og hefur með þessu í fyrsta skipti verið sköpuð heildstæð lagaumgjörð um málaflokkinn. „Með breytingunum sem Alþingi samþykkti í dag stöndum við vörð um mannréttindi og réttláta málsmeðferð þeirra einstaklinga sem um ræðir en gætum um leið að öryggi almennra borgara,“ er haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni ráðherra í tilkynningu frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Alþingi samþykkti í dag einnig frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á almennum hegningarlögum sem skýrir heimildir réttarkerfisins til „öryggisráðstafana“ sem úrlausn í þessum málum gagnvart einstaklingum sem metnir eru sérstaklega hættulegir umhverfi sínu. Heimilt verði, að ströngum skilyrðum uppfylltum, að vista einstakling áfram eftir lok afplánunar ef hann hefur gerst sekur um alvarlegt afbrot og telst áfram verulega hættulegur samfélaginu.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fangelsismál Geðheilbrigði Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira