Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Kjartan Kjartansson skrifar 19. júní 2026 09:31 Frá Landsrétti þar sem tveir dómarar af þremur staðfestu fangelsisdóm yfir manni sem var ákærður fyrir að nauðga kærustu sinni. Myndin er úr safni. Vísir/Hanna Settur landsréttardómari skilaði sératkvæði og vildi sýkna mann sem tveir meðdómendur hans dæmdu sekan um sérstaklega sársaukafulla og meiðandi nauðgun. Hann taldi framburð konunnar um atvik ekki studdan öðrum gögnum í málinu.
Karlmaður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í héraði í fyrra fyrir nauðgun og brot í nánu sambandi gagnvart þáverandi sambýliskonu sinni. Honum var gefið að sök að hafa neytt konuna til samræðis á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt árið 2021. Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Eiríkur Elís Þorláksson, settur landsréttardómari, skilaði sératkvæði en hann vildi sýkna manninn af ákærunni. Eiríkur Elís sagðist sammála meðdómendum sínum um að ákveðið misræmi væri í framburði mannsins fyrir dómi annars vegar og hjá lögreglu hins vegar. Hann teldi þó ýmist óljóst í framburði konunnar og innbyrðis ósamræmi í honum á köflum. Konan hefði þannig lýst broti mannsins á nokkra vegu. Dómaranum greindi einnig á við félaga sína um sönnunarþýðingu óbeinna sönnunargagna sem voru lögð til grundvallar sakfellingu mannsins. Nefndi hann þar sérstaklega vottorð sérfræðilæknis og móttökuskýrslu hjúkrunarfræðings. Af þeim mætti ráða að konan hefði lýst annarri nauðgun daginn fyrir þá sem maðurinn var ákærður fyrir og tilraun til enn einnar nauðgunarinnar nóttina eftir. Lýsingar á þessum þremur brotum hefðu runnið saman og ályktanir hjúkrunarfræðings og læknis tækju mið af því. Því taldi Eiríkur Elís ekki hægt að byggja á skýrslu og vottorði þeirra. Vildi hann þess vegna sýkna manninn af ákærunni. Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til þes að greiða konunni tvær og hálfa milljón króna í bætur.
Dómsmál Dómstólar Kynferðisofbeldi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira