ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar 18. júní 2026 16:03 Utanríkismálanefnd lagði nýlega níu spurningar fyrir Hagfræðistofnun varðandi efnahagsleg áhrif Evrópusambandsaðildar. Erfitt er að að ráða af greinargerð stofnunarinnar að ESB-aðild sé skynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði og hafa svörin án efa valdið mörgum stjórnarþingmönnum vonbrigðum. ESB aðild og upptaka evru ekki ávísun á meiri hagvöxt Kenningar fræðimanna um að sameiginlegur markaður og mynt auki hagsæld – með aukinni samkeppni, viðskiptum ríkja, fjárfestingum, betri verðsamanburði og minni gengisáhættu – hafa ekki gengið eftir í formi meiri hagvaxtar innan ESB (spurning 1).Tölur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tala sínu máli: Á árunum 2010 til 2025 jókst landsframleiðsla á mann úr 33 í 47 þúsund dali í ESB, en úr 44 í 98 þúsund dali á Íslandi. Landsframleiðsla á mann á Íslandi er því tvöfalt meiri en meðaltal ESB ríkjanna og hefur vaxið nærri þrefalt hraðar á þessu tímabili. Það er óljóst hvaða áhrif upptaka evru myndi hafa á vöruverð hér á landi (spurning 2). Mögulegri verðlækkun vegna ESB-aðildar og upptöku evru gætu skattgreiðendur t.d. þurft að mæta með auknum framlögum ríkissjóðs til íslensks landbúnaðar. Athuganir Evrópsku hagstofunnar benda til að upptaka evru hafi ekki haft mikil áhrif á meðaltals verðlag. Betri hagstjórn forsenda lækkunar vaxta og verðbólgu Vaxtamunur á milli Íslands og ESB hefur sveiflast mjög á síðustu tveimur áratugum; hann hefur verið lítill á sumum tímabilum en mikill á öðrum, eins og um þessar mundir (spurning 3).Vextir í Evrópuríkjum sem standa utan ESB eru þó almennt ekki hærri en hjá löndum innan þess. Lægstu vexti má t.d. finna í Sviss sem er utan ESB og hefur sinn eigin gjaldmiðil. Mikil hækkun húsnæðis- og launakostnaðar ásamt vaxandi ríkisútgjöldum eru helstu ástæður þess að vaxtastig er hátt hér á landi. Áhrif ESB-aðildar og upptöku evru á eftirspurn eftir vinnuafli og arðsemi fyrirtækja eru óviss, en munu ráðast af hlutfallslegum breytingum á eftirspurn í útflutnings- og innflutningsgreinum (spurning 4). Stjórnvöld geta hins vegar ekki lengur notað peningamálastefnuna til að takast á við efnahagsveiflur, og verða að reiða sig á aðgerðir í ríkisfjármálum sem eru mun seinvirkari (spurning 5). Mistök í ríkisfjármálum og kostnaðarsamir kjarasamningar geta valdið meiri skaða með ESB-aðild og upptöku evru þar sem ekki er lengur hægt að breyta vöxtum eða gengi. Ein afleiðing getur verið meiri órói á almennum vinnumarkaði en síður á þeim opinbera þar sem ESB-aðild er líkleg til að leiða til fjölgunar starfsmanna í þeim geira. Lífeyrissjóðir fjárfesta meira í bandarískum en evrópskum hlutabréfum Í dag eru rúmlega 40 prósent af eignum íslenskra lífeyrissjóða í erlendum eignum (spurning 6). Lítill hagvöxtur í ESB hefur leitt til aukinna fjárfestinga lífeyrissjóða í bandarískum hlutabréfum. Raunvextir íslenskra ríkisbréfa hafa líka verið hærri en í evrulöndunum. Margir hagfræðingar eru þeirrar skoðunar að evran muni veikjast á næstu árum vegna lítils hagvaxtar og fólksfjölgunar í Evrópu; erfiðrar skuldastöðu margra ríkja; og pólitísks óstöðugleika. Það er því ólíklegt að íslenskir lífeyrissjóðir muni fjárfesta í mun meira mæli í evrópskum hlutabréfum á komandi árum. Óvíst er hvaða áhrif EBS-aðild og upptaka evru hefðu á út- og innflutning Íslands (spurning 7). Ísland hefur gert fjölda fríverslunarsamninga við önnur lönd sem munu falla niður við ESB-aðild. Líklegt er að innflutningur á búvörum muni aukast við ESB-aðild, en umfangið ráðast af stuðningi stjórnvalda við íslenskan landbúnað. Heildarbúsetukostnaður sem hlutfall af ráðstöfunartekjum er hærri í flestum efnaðri ríkja ESB en á Íslandi (spurning 8). Hlutfall leigukostnaður af ráðstöfunartekjum er líka lægra á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Mörg ríki ESB glíma við alvarlega húsnæðiskreppu, þar sem erfitt er fyrir ungt fólk að komast inn á fasteignamarkaðinn og leigu- og íbúðaverð er mjög hátt. Hlutfall fjölskyldna sem búa í eigin húsnæði er töluvert hærra á Íslandi en að meðaltali innan ESB. Ísland stenst nú þegar tvö af fimm Maastricht-skilyrðunum. Það sem á vantar er lækkun skulda hins opinbera, langtímavaxta á ríkisskuldabréfum og verðbólgu (spurning 9). Árangur á þessum sviðum krefst fyrst og fremst betri hagstjórnar, ekki ESB-aðildar eða upptöku evru. Ákall um bættar leikreglur í íslenskri hagstjórn Ísland hefur farið úr því að vera eitt fátækasta land Evrópu á fyrri hluta síðustu aldar í að vera eitt hið efnaðasta. Forystumenn í sjálfstæðisbaráttunni, eins og Jón Sigurðsson, trúðu því að stjórn landsmála væri betur komin í okkar höndum en Dana, og árangurinn talar sínu máli. Núverandi vandamál í efnahagsmálum leysast ekki sjálfkrafa við ESB-aðild og upptöku evru, eins og seðlabankastjóri benti á í ræðu á ársfundi bankans nýlega. Íslensk efnahagsmál eru og verða ávallt á okkar eigin ábyrgð. Ef afrakstur þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok ágúst verður ný þjóðarsátt um bættar leikreglur í íslenskri hagstjórn, má segja að við höfum gengið „til góðs, götuna fram eftir veg“, eins og Jónas Hallgrímsson kvað forðum. Höfundur er sérfræðingur í opinberri stefnumótun með doktorsgráðu auk meistaragráðu í bæði opinberri stjórnsýslu og rekstrarhagfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar