Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar 18. júní 2026 07:32 Á þjóðhátíðardaginn sótti ég stofnfund Ungra gegn ESB-aðild — þverpólitísks vettvangs ungs fólks sem telur hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins. Fundurinn var nokkuð vel sóttur og var sannarlega um þverpólitískan hóp að ræða. Í salnum mátti sjá ungt fólk með litað hár, nefhringi og í rifnum fötum; hávaxna, ljóshærða og bláeygða Miðflokksmenn í sérsniðnum jakkafötum; Sjálfstæðismenn sem virtust hafa komið beint af lögfræðistofunni; og fólk í einkennisbúning sósíalistans — axlarböndum og strangheiðarlegum gallabuxum. Ungir sem aldnir. Fyrrverandi, núverandi og, mögulega, tilvonandi stjórnmálamenn. Allir mættir til að styðja málstaðinn. Fyrsti ræðumaður, að fundarstjóra frátöldum, var Birgir Ármannsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis. Ræddi Birgir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og afleiðingar þess ef niðurstaðan yrði sú að hefja skyldi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rauður þráður í ræðu hans var mikilvægi málefnalegrar umræðu. Sterk rök væru gegn aðildarviðræðum og því ætti að halda sig við þau í stað þess að grípa til gífuryrða og ómálefnalegrar orðræðu. Þessar leiðbeiningar Birgis virti næsti ræðumaður, Steinþór Logi Arnarsson, formaður Samtaka ungra bænda, en það tók þriðja ræðumanninn, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, aðeins örfáar mínútur að víkja frá þessum ágætu leiðbeiningum í þágu sinnar hefðbundnu, popúlísku og ómálefnalegu orðræðu — “hyski”, “arðræningjar”, o.s.frv. Hvað veldur því að svona fjölbreyttur hópur fólks komi saman og, að óhjákvæmilegu skítkasti Sólveigar undanskildu, ákveði að slíðra sverðin? Fyrir hverju er barist? Svarið er einfalt: barist er fyrir sjálfsákvörðunarrétti þeirra íslendinga sem koma til með að erfa landið — unga fólksins. Barist er fyrir því að ungt fólk fái að stýra Íslandi í þá átt sem því þykir best, með sama hætti og eldri kynslóðin hefur gert fram til þessa. Barist er fyrir því að íslenskir stjórnmálamenn framtíðarinnar séu ekki fjötraðir við fjarlægar og ólýðræðislegar ákvarðanir erlendra embættismanna sem enga tengingu hafa við Ísland og enga þekkingu á íslenskum aðstæðum eða íslensku þjóðfélagi. Kyndilberar mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu hafa ítrekað haldið því fram að aðild að sambandinu væri í þágu ungs fólks. Að ungt fólk sé betur sett innan veggja þessa fjarlæga bandalags. Undir verndarvæng þess. Að mínu mati lýsir þetta ótrúlegu vantrausti á íslenskan ungdóm, en slíku hafna ég alfarið. Ég fullyrði að hagsmunir ungs fólks felast í frelsi yfir eigin framtíð. Yfir eigin lífi. Frelsi til að koma saman á sameiginlegri forsendu farsældar íslensks þjóðfélags og taka ákvarðanir í þágu þess. Ég fullyrði að ungir Íslendingar viti betur en nafnlausir embættismenn í Belgíu, Frakklandi og Þýskalandi hvernig Ísland ætti að þróast á komandi árum. Ég fullyrði að ungum Íslendingum sé treystandi fyrir eigin framtíð. Ég fullyrði að frelsið sé þess virði. Höfundur er tölvunarfræðingur og ungur Íslendingur sem er treystandi fyrir eigin framtíð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar