Hipsumhaps rýfur þögnina Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. júní 2026 09:02 Fannar Ingi hjá Hipsumhaps var að gefa út plötuna Algrím hjartans. Erlendur Sveinsson „Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta,“ segir Fannar Ingi Friðþjófsson, jafnan kenndur við hljómsveitina Hipsumhaps. Breiðskífan Algrím hjartans, nýjasta plata sveitarinnar, kom út á öllum helstu streymisveitum í gær, á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Frumhlustun í Gamla bíói Útgáfunni var fagnað með glæsilegri frumhlustun fyrir fullu húsi í Gamla bíói þann 10. júní síðastliðinn. „Á frumhlustunarkvöldinu bauð Hipsumhaps gestum upp á einstaka upplifun þar sem platan var spiluð í heild sinni á meðan Fannar Ingi deildi sögum og pælingum á bak við hvert einasta lag. Viðburðurinn var sitjandi og einkenndist af einstaklega notalegri og nákominni stemningu. Vinna við Algrím hjartans hefur verið yfirgripsmikil og ströng, en upptökur hófust í júlí á síðasta ári og stóð lokahnykkurinn yfir frá febrúar fram í maí á þessu ári. Stór hópur afburða tónlistarfólks og tæknimanna kom að gerð plötunnar til að láta hana verða að veruleika,“ segir í fréttatilkynningu. Sögufræg stúdíó Upptökum og útsetningum var stýrt af Fannar Inga og Kaktusi Einarssyni, auk þess sem Kristinn Þór Óskarsson stýrði upptökum og útsetningu á öðru lagi plötunnar. Þeir spiluðu jafnframt á öll möguleg hljóðfæri. Algrím hjartans kom út á miðnætti.Erlendur Sveinsson/Sigurður Ýmir „Hljóðheimurinn var fangaður í sögufrægum stúdíóum; í Hljóðrita, París á Frakkastíg, Stúdíó Kisi og Sundlauginni, þar sem Sigurður Ingvar Þorvaldsson og Jóhann Rúnar Þorgeirsson sáu um hljóðtækni. Bergur Þórisson hljóðblandaði svo plötuna og Emil Thomsen sá um hljómjöfnun. Sjónrænn heimur plötunnar var sömuleiðis vandaður þar sem Erlendur Sveinsson skapaði myndheiminn, Sigurður Ýmir Kristjánsson hannaði grafík og Hulda Halldóra Tryggvadóttir var stílisti.“ Landslið flytjenda Listinn yfir flytjendur á plötunni telur marga öfluga tónlistarmenn. Meðal þeirra eru gítarleikararnir Björgúlfur Jes Einarsson og Snorri Helgason, en Snorri syngur einnig bakraddir ásamt Rakel Sigurðardóttur og Védísi Hervöru Árnadóttur. Trommuleikur var í höndum Axels Haraldssonar, Bergs Einars Dagbjartssonar og Þorvaldar Halldórssonar, og um bassann sáu þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson, Ólafur Alexander Ólafsson og Pálmi Gunnarsson, en Pálmi ljáði plötunni sömuleiðis bakraddir. Tómas Jónsson og Magnús Jóhann Ragnarsson spiluðu á hljómborð, píanó og hljóðgervla, Tumi Árnason blés í saxófóninn, og þær Eyja Ragnheiðardóttir og Rut Sigurðardóttir prýddu plötuna með fiðlu- og sellóleik. „Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta,“ segir Fannar Ingi í Hipsumhaps í kveðju sinni til hlustenda. Myndir frá hlustuninni úr Gamla bíói má sjá hér fyrir neðan frá ljósmyndaranum Ara Páli Karlssyni: Ragnhildur Gísladóttir og Birkir Kristins í góðum gír.Ari Páll Margt um manninn og kósí fílingur.Ari Páll Erna Dögg Hjaltadóttir hjá Peroni-umboðinu og Ólöf Ragnarsdóttir fréttakona á RÚV.Ari Páll Gestir hlustuðu af einlægni.Ari Páll Ljósadýrð.Ari Páll Gabríel Breki Kristinsson og Kolbeinn Högni Gunnarsson.Ari Páll Fannar Ingi í fíling á sviðinu.Ari Páll Gestir dilluðu sér.Ari Páll Lagið Meðal mannsins.Ari Páll Guðmundur Atli Hlynsson í góðum félagsskap.Ari Páll Ljósin spiluðu skemmtilegt hlutverk á tónleikunum.Ari Páll Magnús Jóhann Ragnarsson píanósnillingur, Ólafur Alexander bassaleikari Hipsumhaps, Sveinn Breki Hróbjartsson frumkvöðull og Pétur Sigurðsson.Ari Páll Ari Páll Karlsson og Ágúst Elí Ásgeirsson.Aðsend Gul hjörtu.Ari Páll Það breytist ekki neitt syngur Fannar Ingi.Ari Páll Sól og skjaldbökur.Ari Páll Glæsilegir gestir.Ari Páll Hugguleg stemning.Ari Páll Inga Fríða Guðbjörnsdóttir, Eygló Nanna Arnþórsdóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Bríet Sif Hinriksdóttir.Ari Páll Metta Sigurrós Eyjólfsdóttir.Ari Páll Tvö í stuði.Ari Páll Ísak Ernir og Völundur Hafstað.Ari Páll Guðbjörg Bjarkadóttir og Aron Ás KjartanssonAri Páll Diljá Elíasdóttir og Thelma Rut Elíasdóttir.Ari Páll Stuðboltar.Ari Páll Hrafnhildur Gísladóttir í góðum félagsskap.Ari Páll Lagið Fullur í friði.Ari Páll Arna Dís Arnþórsdóttir og Gylfi Tryggvason.Ari Páll Átök.Ari Páll Ólöf Ragnarsdóttir og Guðmundur Atli Hlynsson fréttamenn RÚV.Ari Páll Kaktus steig á stokk.Ari Páll Tónleikagestir í stemningu.Ari Páll Bergur Einar trommari með góðum vin.Ari Páll Kaktus Einarsson tónlistarmaður vann plötuna með Fannari.Ari Páll
Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið Hipsumhaps rýfur þögnina Tónlist Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Bíó og sjónvarp Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning „Ég er skíthræddur“ Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Fleiri fréttir Hipsumhaps rýfur þögnina „Ég er skíthræddur“ Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Bonnie Tyler vöknuð úr dái Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Sjá meira