Hitnar í kolunum: McGregor hnakkreifst við Holloway Aron Guðmundsson skrifar 15. júní 2026 20:32 McGregor átti nokkur vel valin orð fyrir Max Holloway en kapparnir mætast í bardagabúrinu í næsta mánuði. Innan við mánuður er til stefnu þar til að Conor McGregor, eitt þekktasta nafn bardagheimsins, snýr aftur í bardagabúrið á vegum UFC og berst við Max Holloway. Það verður í annað skiptið sem kapparnir mætast í búrinu. Þeir hnakkrifust í beinni útsendingu í nótt.
Ekki er um titilbardaga að ræða þó þeir séu báðir fyrrum UFC meistarar. Þeir hafa einu sinni mæst áður, snemma á ferlinum. Þá í fjaðurvigt. McGregor vann bardagann, sem var aðeins annar bardaginn á UFC ferli hans, í júlí 2013, á dómaraákvörðun. McGregor hefur ekki barist síðan þann 10. júlí 2021 þegar hann fótbrotnaði í tapi gegn Dustin Poirier og hefur frægðarljóminn dvínað frá því að Írinn varð á sínum tíma fyrsti tvöfaldi UFC meistarinn. Vandræði í einkalífinu hafa sett strik í reikninginn hjá McGregor sem snýr aftur í búrið núna og segist betri en nokkru sinni áður. Bardagi McGregor og Holloway verður í veltivigt en kapparnir mættust í beinni útsendingu með Joe Rogan sem sýnt var á bardagakvöldi UFC við Hvíta húsið síðastliðna nótt. Þar hitnaði í kolunum. „Ég hef hlustað á fólk halda því fram að Max sé pund fyrir pund besti bardagakappinn í sögu fjaðurvigtardeildarinnar. Þegar að ég skólaði hann til í þeim þyngdarflokki,“ sagði Conor og hélt áfram. „Ég hef líka hlustað á fólk segja að Holloway hafði verið krakki þegar að við börðumst síðast. Á þeim tímapunkti var að ræða sjötta bardaga hans, annan bardaga minn.“ Orðaskipti McGregor urðu snörp og hvöss og var erfitt að greina hvað fór almennilega þeirra á milli. En þegar að írski vélbyssukjafturinn er kominn af stað þá er erfitt að stoppa hann. „Max. Þú munt ekki ná höggi á mig,“ sagði McGregor. „Jafnvel ef þú myndir gera það þá mun ég hlæja framan í þig. Þetta er allt annar heimur þegar að þú stígur inn í bardagabúrið með mér. Allt annar heimur í þessum þyngdarflokki,“ bætti McGregor við en bardaginn verður sá fyrsti hjá Holloway í veltigvigt, sá þriðji hjá McGregor sem telur sig munu sleppa óskaddaður frá bardaganum gegn Holloway.
MMA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Sjá meira