Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. júní 2026 07:03 Antisportistar geta gert ýmislegt á meðan HM stendur yfir en þeir eru kannski ekki mjög líklegir til að kíkja á Ölver. Og þó, maður þarf ekkert að horfa á leikina þó maður fái sér bjór. Vísir/Vilhelm Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hófst fyrir viku síðan og fótboltaunnendur eru búnir að fá vænan skammt af tuðrusparki. Hins vegar er nóg eftir, heill mánuður til viðbótar og tugir leikja. Hvers eiga antisportistar að gjalda sem hata hinn fagra leik?
Vísir hefur tekið saman þrettán hluti sem antisportistar og aðrir minni spámenn geta tekið sér fyrir hendur meðan HM er í gangi. 1. Drullaðu þér út! Þó þú viljir ekki horfa á 22 sveitta karlmenn hlaupa um í grasinu og sparka milli sín tuðru þýðir ekki að þú þurfir að húka inni. Sumarið er komið og sólin skín. Farðu út, snertu grasið og taktu inn veisluna. Það er fátt betra en að fá sé bjór í sólinni með góðum vinum.Vísir/Vilhelm 2. Gusaðu þig (eða kíktu í sund) Allir og amma þeirra eru orðnir gusumeistarar svo það er nóg úrval. Það er hægt að skella sér í gusu í Litla Sánahúsinu á Kársnesi, í rjúkandi fargufu á Gufunesi og Skarfakletti, Sækot við Ægisíðu og Kotið Sauna á Akranesi og eflaust ýmislegt fleira. Ef þú nennir ekki að punga út þessum fimmþúsundkalli sem það kostar að fara í gusu þá er annar kostur mögulegur, sem er jafnvel enn betri: sund í einni af ótal mörgum sundlaugum landsins. 3. Sumarbíó Bíósumarið er byrjað af fullum krafti, nóg af skemmtilegum kvikmyndum í bíó þessa dagana og tilvalið að skella sér Hrollvekjurnar Obsession og Backrooms hafa slegið í gegn upp á síðkastið og íslenska sumarkvöldsólin dempar hryllinginn. Ef maður vill eitthvað léttara er hægt að kíkja á Jóhannes Hauk og félaga í Masters of the Universe eða paródíuruglið í Scary Movie 6. Ef þú misstir af Marty Supreme, The Drama og Bugonia á síðustu mánuðum eru þær enn sýndar í Bíó Paradís auk ýmissa annarra. Meistari Spielberg er síðan mættur aftur með enn eina geimverumyndina í Disclosure Day, leikfangamyndin Toy Story 5 er nýkomin út, ofurhetjumyndin Super Girl er handan við hornið og rugludallarnir í Jackass líka. Það er nóg um að vera í bíóhúsunum. 4. Ræktaðu garðinn þinn „Maður verður að rækta garðinn sinn,“ segir sakleysinginn Birtíngur í lok samnefndrar sögu eftir Voltaire þegar hann er búinn að upplifa ýmiss konar hremmingar. Þetta er rétt hjá kauða í bæði óeiginlegri og eiginlegri merkingu, það er kominn tími á að hreinsa beðin, slá grasið og klippa þessar dauðu greinar. Taktu þennan þér til fyrirmyndar.Vísir/Vilhelm 5. Hringdu í gamla vini Það er komið að því, taktu upp tólið og hringdu í þennan gamla góða vin úr menntaskóla sem þú hefur ekki séð í nokkur ár. Eða jafnvel æskuvinkonuna sem þú hefur ekki haldið bandi við síðan þið útskrifuðust úr grunnskóla. Nú er tíminn. Nú er tími til að rífa fram símann. 6. Byrjaðu sumarlesturinn af alvöru Bókalestur er ódýr, einföld og stórskemmtileg afþreying þó að hann hafi átt undir högg að sækja síðustu ár vegna ógrynnis afþreyingarefnis, minnkandi læsis landsmanna og plágunnar sem samfélagsmiðlar eru. Það er fátt betra en bóklestur í sólinni og af nógu að taka, hægt að grípa í góðan krimma, finna sér auðlesna sumarbók eða taka þátt í bókaklúbbinum Aldrei las ég Laxness og lesa Laxness-bækurnar sem þú átt eftir. Þessi lagði hjólinu og greip í góða bók.Vísir/Vilhelm 7. Farðu út á land Það er uggur í ferðaþjónustunni vegna fækkandi ferðamanna (nema reyndar þegar sólmyrkvinn ríður yfir landið í ágúst) þannig það er um að gera að leggja sitt á vogarskálarnar og kíkja út á land. 8. Fáðu þér nýtt áhugamál Fótbolti? Golf? Prjón? Frisbí-golf? Hjólreiðar? Tafl? Fjallganga? Padel? Tennis? Dans? Bakstur? Laxveiði? Píla? Gluggaverslun? Blogg? Baggað með íslensku? Hugleiða? Sjoppað á netinu? Mála? Hestamennska? Badminton? Lyftingar? Finndu þér nýtt áhugamál og dembdu þér út í það í sumar meðan fótboltabullurnar húka inni. Þessir kunna að slá kúluna hvítu.Vísir/Vilhelm 9. Lestu esseyjuna „Syndin að fíla ekki fótbolta“ Allir þeir sem hata Heimsmeistarakeppnina í fótbolta verða að lesa esseyjuna „Syndin að fíla ekki fótbolta“ eftir suður-kóreska leikstjórann Park Chan-Wook sem hann skrifaði beint eftir HM 2002 í Japan og Suður-Kóreu. „Ég á erfitt með að sjá hvað er svona spennandi við það að horfa á annað fólk sparka milli sín bolta í von um að hann lendi í markinu. Hefði þetta Heimsmeistaramót verið haldið í öðru landi eða Kóreu ekki tekist að komast í útsláttarkeppnina hefði mér verið alveg sama. En sigurganga kóreska liðsins á heimavelli hefur gert það að verkum að áhugaleysi mitt hefur breyst í andúð,“ skrifaði Chan-Wook. Park Chan-Wook er ekki mikill fótboltakall.Getty „Ef það var einhver silfurrönd þá var hún sú að konan mín hafði heldur engan áhuga á fótbolta. Samband okkar styrktist á þessum raunatímum. En meira að segja það entist ekki þegar ég greip hana við það að horfa í leyni á undanúrslitaleik Kóreu gegn Þýskalandi. Ég grátbað hana: „Hefurðu glatað öllu stolti? Hvernig gastu gengið til liðs við lýðinn sem traðkaði á okkur?“ Svar hennar tortímdi mér alveg. Svo virðist sem nágrannar okkar hafi bent á dóttur okkar og slúðrað um foreldra hennar sem fylgdust ekki með Heimsmeistaramótinu. Ég missti allan styrk til að halda áfram baráttu minni,“ skrifaði Chan-Wook. 10. Endurheimtu barnið innra með þér Þó maður sé orðinn fullorðinn er aldrei of seint að rækta barnið innra með sér. Í tilefni þess að skólar eru komnir í frí tók fjölmiðlamaðurinn Jón Axel Ólafsson saman lista yfir þrjátíu góða sumarleiki. Leikirnir eru fullkomnir fyrir foreldra sem vantar eitthvað að gera með börnum sínum en svo er auðvitað frábært að ganga aftur í barndóm. 11. Kíktu á hina rásina Fótboltadoktorinn Hjörvar Hafliðason hefur verið fremstur í flokki þeirra sem hafa gagnrýnt það að leikirnir á Heimsmeistaramótinu séu yfirleitt sýndir á Rúv 2 meðan hefðbundin dagskrá fær aðalstöðina. Antisportistar hljóta þó að fagna því og geta haldið sig á aðalrásinni meðan fótboltinn tekur yfir Rúv 2. Þar kennir ýmissa grasa næstu vikurnar, hægt að horfa á sænsku heimildarþættina Pappa utan att vetta, ferðaþættina Steinsnar frá þjóðvegimeð Erni Árnasyni, fótboltagamanþættina Twenty Twenty Six, hinn gamla góða Séra Brown, náttúrulífsþættina Planet Earth og hina sígildu Mulholland Drive. Svo er alltaf nóg um að vera á Sýn líka. Mulholland Drive er klassík. 12. Taktu borgarstjóra til fyrirmyndar og hringdu símaat Nýlega var fjallað um tíu hluti sem fólk vissi ekki um nýjan borgarstjóra Reykjavíkur, Hildi Björnsdóttur, en þar kom meðal annars fram að hennar eftirlætis áhugamál sé að hringja símaöt. Það er auðvitað fátt skemmtilegra en að hrella Hildur Björnsdóttir hringir í vin.Vísir/Vilhelm 13. Líttu í eigin barm Það er alltaf tilefni til að horfa inn á við og líta í eigin barm. En ef þú ætlar ekkert að fylgjast með Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu þá þarftu að fara að hugsa þinn gang.
Menning Fótbolti HM 2026 í fótbolta Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fleiri fréttir „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Sjá meira