Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. júní 2026 10:46 Engin merki um gos á svæðinu en skjálftarnir sem mældust í öskjunni hafi verið afar þéttir. Ragnar Axelsson Um það bil 400 skjálftar mældust í kröftugri skjálftahrinu sem hófst um áttaleytið í Bárðarbungu í gær, sá stærsti 4,8 að stærð. Náttúruvársérfræðingur segir hrinurnar umfram hefbundna virkni í eldstöðinni. Því hafi verið tekin ákvörðun að færa fluglitakóðann á svæðinu upp á gulan.
Nokkuð kröftug skjálftahrina hófst klukkan átta í gærkvöldi í Bárðarbungu. Stærsti skjálftinn mældist 4,8 að stærð rétt upp úr átta. Eftir þann skjálfta varð hlé í hrinunni en um tíuleytið hafi færst ákafi í hana og um það bil 400 skjálftar hafi mælst fram til hálf fjögur í nótt í norðvesturhluta öskjunnar, segir Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Um það bil ellefu skjálftanna voru yfir þrír á stærð. Virknin sé umfram það sem eðlilegt teljist á svæðinu og því var tekin ákvörðun um að færa fluglitakóðann upp á gulan, sem er gert þegar eldstöð sýnir merki um hefbundna virkni. Enginn gosórói hafi mælst á neinum tímapunkti á svæðinu en skjálftarnir sem mældust í öskjunni hafi verið afar þéttir. Klukkan hálf fjögur í nótt hafi dregið ansi hratt úr skjálftavirkni og síðan þá hafi verið tiltölulega rólegt á svæðinu. Ingibjörg segir það of snemmt að segja til um hvort að virknin á svæðinu sé búin í bili en Veðurstofan fylgist grannt með eldstöðvum af slíkri stærðargráðu. „Það þarf ekki meira en kannski bara einn stóran kröftugan aftur til að keyra þetta allt í gang.“ Síðast hafi verið mikil virkni á svæðinu í janúar 2025. Þá var svipuð staða uppi á teningnum, öflug hrina með kröftugum skjálftum, sá stærsti um fimm að stærð, sem fjaraði síðan út. Bárðarbunga er megineldstöð sem liggur undir Vatnajökli og hafa minnst 26 eldgos orðið þar á síðustu ellefu öldum, samkvæmt hinni íslensku eldfjallavefsjá. Síðast var þar sprungugos í Holuhrauni norðan Vatnajökuls sem stóð yfir frá ágúst 2014 til febrúar 2015. Þá voru miklar hræringar í öskjunni í aðdraganda gossins, segir Ingibjörg.
Eldgos og jarðhræringar Bárðarbunga Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira