Sport

Russell byrjar á ráspól í Barcelona

Andri Broddason skrifar
George Russell náði ráspól í Barcelona á meðan liðsfélagi hans byrjar kappaksturinn þriðji.
George Russell náði ráspól í Barcelona á meðan liðsfélagi hans byrjar kappaksturinn þriðji. Rudy Carezzevoli/Getty Images

Tímatökur fyrir Barcelona-kappaksturinn voru í dag þar sem George Russell endaði á ráspól. Lewis Hamilton heldur áfram góðu gengi á meðan liðsfélagi hans er í vandræðum.

Eftir mikla sigurgöngu unga ökumannsins Kimi Antonelli er komið að liðsfélaga hans hjá Mercedes, George Russell, að vera á ráspól fyrir Barcelona-kappaksturinn á morgun.

Kimi Antonelli endaði í þriðja sæti í tímatökunum eftir að Lewis Hamilton hjá Ferrari náði næsthraðasta tímanum. Gengi Lewis Hamilton hjá Ferrari hefur farið stigvaxandi og sagði hann sjálfur að það styttist í fyrsta sigur hans hjá bílaframleiðandanum.

Liðsfélagi Hamilton hjá Ferrari hefur ekki fagnað jafn góðu gengi en óhöppin virðast elta hann hvert sem hann fer. Nýlega skrifaði hann undir nýjan samning hjá Ferrari en svo virðist sem það hafi ekki fært honum lukku. Leclerc klessti á í síðustu keppni í heimalandi hans Mónakó en nú klessti hann aftur á í lokahluta tímatakanna og byrjar því keppnina á morgun tíundi.

Heimamaðurinn Fernando Alonso hjá Aston Martin var með hægasta hringinn í tímatökunum og byrjar því keppnina á morgun aftast. Þetta kemur honum ekki á óvart enda finnur hann að Aston Martin-bíllinn er langhægastur.

Liðsfélagi Alonso, Lance Stroll, náði að vera hraðari en liðsfélagi hans og er þetta í fyrsta skipti í 42 keppnum sem Lance Stroll er hraðari en Alonso í tímatökum. Það gera næstum því tvö heil tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×