Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. júní 2026 07:03 Ugla hefur stefnt Eldi vegna ummælanna. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir hefur stefnt Eldi Smára Kristinssyni Ísidóri fyrir héraðsdóm vegna ummæla hans um Uglu. Hún segir málið prófstein á það hvað megi og megi ekki í opinberri umræðu, hún segist ítrekað hafa óttast um öryggi sitt vegna orðræðu sem farið hafi harðnandi upp á síðkastið.
Ummælin lét Eldur falla á samfélagsmiðlunum Facebook og X í október árið 2023 vegna skoðanagreinar Uglu sem birtist í breska götublaðinu Metro, eftir að bresk heilbrigðisyfirvöld tilkynntu um fyrirætlanir sínar um að hætta að veita börnum í kynstaðfestandi ferli lyf sem ætlað er að seinka framgangi kynþroska, oft kallað hormónablokkerar. Ugla lýsti þar yfir áhyggjum af málinu og því að það myndi valda börnum og fjölskyldum þeirra mikilli vanlíðan. Eldur skrifaði í kjölfarið færslur um greinina á samfélagsmiðla og birti meðal annars mynd af Uglu þar sem á stóð „BARNANÍÐINGUR.“ Ummælin sem Ugla vill að verði dæmd dauð og ómerk eru: „Barnaníðingur“ „Þessi manneskja styður geldingar barna“ „Þessi manneskja hvetur til ógagnreyndra meðferða“ „Þessi manneskja styður tilraunastarfsemi á börnum“ „Þessi manneskja ætti að vera í fangelsi“ Auk þess krefst Ugla tveggja milljóna króna í miskabætur frá Eldi og þess að Eldur fjarlægi umrædd ummæli af samfélagsmiðlum, að viðlögðum dagsektum að fjárhæð þrjátíu þúsund krónum á dag. Fram kemur í stefnunni að Ugla telji sig að minnsta kosti frá árinu 2022 til dagsins í dag þurft að þola áreiti og meiðandi orðræðu í sinn garð af hálfu Elds. Finnst mikilvægt að draga línu í sandinn „Ástæða þess að ég ákveð að fara í þetta er vegna þess að mér finnst mikilvægt að einhver lína sé dregin í sandinn í opinberri umræðu, hún er búin að versna mjög mikið undanfarið og ég hef sjálf tekið eftir auknum fordómum og hatri í minn garð,“ segir Ugla í samtali við Vísi. Hún segist ekki óvön því að vera á milli tannanna á fólki og segist vön því að fólk hafi á henni allskoanr skoðanir. „En þarna finnst mér farið yfir línuna, vegna þess að þarna er verið að ásaka mig um grafalvarlegan glæp, það að vera barnaníðingur er ekki eitthvað sem þú getur kallað fólk bara vegna þess að þú ert ósammála þeim. Mér finnst við þurfa að vernda þessa línu, auðvitað er mikilvægt að fólk geti átt skoðanaskipti, það er hluti af lýðræðislegu samfélagi en þetta er eitthvað annað.“ Hvaða áhrif heldurðu að þetta muni hafa á umræðuna, hann er líklega ekki að fara að skipta um skoðun? „Það er erfitt að segja. Hann er mjög óútreiknanlegur og svífst greinilega einskis í því sem hann segir um fólk á netinu, það eru allskonar ljótir hlutir sem hann hefur sagt þar sem hann hefur rætt um líkama minn, sambandið mitt, talar til mín í karlkyni. Mjög líklega gæti hann brugðist við á slæman hátt en mér finnst mikilvægt að það sé einhver lína dregin í sandinn, því það sendir skýr skilaboð um það hvað er í lagi og hvað er ekki í lagi. Kannski breytir þetta ekki hans skoðun en mér finnst mikilvægt að fólk sjái að svona er ekki í lagi og að fólk þurfi ekki að sætta sig við það að það sé talað um það með þessum hætti.“ Hafnar kröfum Uglu Í greinargerð hafnar Eldur kröfum Uglu. Þar segir hann að myndin sem Ugla vísi til sem og ummælin undir henni hafi ekki verið frá honum komin heldur frá öðrum notanda á samfélagsmiðlinum X. Hann hafi einungis endurbirt myndina og tjáð sig um efni hennar, lýst sig sammála. Hann neitar því að hafa fullyrt að Ugla sé barnaníðingur eða hafi gerst sek um barnaníð. Séu skrif hans skoðuð í samhengi sé ljóst að hann sé ekki að halda slíku fram, fráleitt sé að hann hafi haldið því fram að hún hafi gerst sek um kynferðisofbeldi gegn börnum. „Stefndi hefur hins vegar haldið því fram að ógagnreynd tilraunastarfsemi á börnum, þá m.a. með því að gefa börnum lyf, sem stöðva kynþroskaferlið, eða önnur slík inngrip, sé barnaníð,“ segir í greinargerðinni. Eldur segir að ummæli hans séu innan marka tjáningarfrelsis hans, um sé að ræða umdeildasta ágreiningsmál samtímans og ummælin sé í öllu falli hluti af opinberri umræðu. Það leiði til þess að tjáningarfrelsið verði að túlkast rúmt. Skorður sem tjáningarfrelsinu séu settar til verndar æru og mannorði annarra beri að skýra þröngt og beita með gát. Segir málið prófstein á hvort núverandi umræða líðist Ugla segir að fyrirtöku málsins hafi átt að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. júní. Henni hafi verið frestað til 20. ágúst. Hún segist telja málið fordæmisgefandi. „Mér finnst þetta mál geta skýrt það fyrir fólki sem tilheyrir minnihlutahópum og fólki sem er talsfólk mannréttinda, hverskonar meðferð við þurfum að sæta fyrir það? Mér finnst að þetta geti verið fordæmisgefandi mál, hvað er í lagi í opinberri umræðu og hvað ekki?“ spyr Ugla sig. „Þess vegna finnst mér það ekkert endilega snúast bara um mig, heldur fólk í opinberri umræðu og það hvernig hún hefur orðið skautaðri, fjandsamlegri, harðari og ljótari. Hvernig samfélag viljum við skapa? Samfélag þar sem fólk getur átt í eðlilegum skoðanaskiptum, tekist á málefnanlegum grundvelli eða ætlum við að leyfa fólki að draga umræðuna gjörsamlega niður í svaðið, þar sem það getur sakað þig um að vera barnaníðingur?“ Ugla segist ekki taka undir fullyrðingar Elds um að hann hafi iðkað rétt sinn til málfrelsis. „Auðvitað á fólk rétt á sínu málfrelsi en það er ekki málfrelsi að saka einhvern annan um glæp. Þetta finnst mér að ætti að vera ein af þessum línum.“ Hafi óttast um öryggi sitt Ugla segir það taka sinn toll að lesa ítrekað ljót ummæli um sig á samfélagsmiðlum. „Þegar fólk sem maður þekkir ekki neitt tekur mann persónulega fyrir, segir ljóta hluti um mig, maka minn og fjölskylduna og birtir lúmskar hótanir, þá auðvitað tekur það á. Og mér var sérstaklega brugðið að sjá þessi ummæli, að sjá að einhver sakar mann um að vera barnaníðingur. Það á enginn að sitja undir slíku og þetta hefur óneitanlega áhrif á mann.“ Hún segir umræðuna fyrir löngu verið byrjaða að hafa áhrif á hegðun hennar og daglegt líf. „Ég þarf að velta fyrir mér hvert ég fer, hvenær ég fer, ég fer ekki út að djamma um helgar í bænum, öryggis míns vegna, ég set ekki heimilisfangið mitt neinsstaðar á netið, bara öryggisins vegna. Ég hef alveg þurft að ræða öryggismál í vinnunni minni og annað.“
Dómsmál Tjáningarfrelsi Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira