Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. júní 2026 11:31 Birnir og GDRN voru að gefa út tónlistarmyndband. Vísir/Vilhelm/Stikla „Ég er virkilega spennt að halda áfram að gefa út tónlist í þessum stíl,“ segir poppstjarnan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN. Hún frumsýnir hér tónlistarmyndband ásamt rapparanum Birni við splunkunýtt lag sem heitir Vilt fá. Í spilaranum hér að neðan má sjá tónlistarmyndbandið sem kemur á aðrar streymisveitur á morgun: Klippa: GDRN & Birnir - VILT FÁ „Það var svo gaman að fá að vinna með Marteini og Birni að þessu lagi, þeir hafa einhverja nálgun á tónlist sem er svo inspererandi og spennandi. Marteinn og Birnir voru byrjaðir að vinna í grunninum, hljómum og orðum þegar þeir leyfðu mér að spreyta mig á laginu og úr varð þetta lag,“ segir Guðrún Ýr hress og kát, en það er alltaf nóg að gera hjá henni. Hún er orðin tveggja barna móðir og virðist undir stöðugum innblæstri. Sköpunargleði hennar hefur engin takmörk en hún er nú að vinna að nýrri breiðskífu. Vísir hefur á undanförnum árum frumsýnt mörg hundruð tónlistarmyndbanda sem finna má á sjónvarpsvef Vísis. Þar má sömuleiðis finna hvers kyns myndbönd með einstaka listamönnum með því að slá inn nafn viðkomandi í leitarglugga . Lagið er pródúserað og tekið upp af Marteini Hjartarsyni, betur þekktum sem Bngrboy, og mix og mastering var í höndum Starra Snæs Valdimarssonar. GDRN og Birnir hafa áður unnið saman að tónlist og síðast á laginu Sýna mér, sem kom út á plötu Birnis og var einnig unnið í samstarfi við Martein. View this post on Instagram A post shared by GDRN (@eyfjord) Tónlistarmyndbandið var tekið upp þann 31. maí í Studio Syrlandi og er leikstýrt af Gesti Sveinssyni, GDRN og Hákoni Erni Helgasyni. Gestur Sveinsson sá jafnframt um kvikmyndatöku, en Hákon Örn Helgason og Gestur Sveinsson unnu saman að klippingu og litgreiningu myndbandsins. „Tónlistarmyndbandið var unnið með frábæru fólki sem var tilbúið að prófa ólíkar nálganir til að ná fram þeirri útkomu sem við vildum, sem skilaði sér svo sannarlega,“ bætir Guðrún Ýr við en myndbandið er tekið upp í svokölluðum „one shot“ stíl, þar sem engin klipping á sér stað og allt er tekið upp í einni samfelldri töku. Lýsingin spilar þar lykilhlutverk í heildarútliti og stemningu myndbandsins, þar sem unnið er markvisst með birtu og tilfinningar í hverri lýsingaruppsetningu fyrir sig. „Að verkefninu kom einnig mikið fagfólk til sögu; Andri Marino Karlsson sem gaffer, Guðsteinn Grétar Jónsson sem grip og aðstoðarmaður við myndatöku, Sunna Björk Erlingsdóttir sá um förðun, Bjartey Elín Hauksdóttir var danshöfundur og Sigríður Ágústa ásamt Rubinu Singh Arnoddsdóttur sáu um búninga,“ segir Guðrún Ýr að lokum. Tónlist Tónlistarmyndbönd Mest lesið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Lífið Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Lífið Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira
Í spilaranum hér að neðan má sjá tónlistarmyndbandið sem kemur á aðrar streymisveitur á morgun: Klippa: GDRN & Birnir - VILT FÁ „Það var svo gaman að fá að vinna með Marteini og Birni að þessu lagi, þeir hafa einhverja nálgun á tónlist sem er svo inspererandi og spennandi. Marteinn og Birnir voru byrjaðir að vinna í grunninum, hljómum og orðum þegar þeir leyfðu mér að spreyta mig á laginu og úr varð þetta lag,“ segir Guðrún Ýr hress og kát, en það er alltaf nóg að gera hjá henni. Hún er orðin tveggja barna móðir og virðist undir stöðugum innblæstri. Sköpunargleði hennar hefur engin takmörk en hún er nú að vinna að nýrri breiðskífu. Vísir hefur á undanförnum árum frumsýnt mörg hundruð tónlistarmyndbanda sem finna má á sjónvarpsvef Vísis. Þar má sömuleiðis finna hvers kyns myndbönd með einstaka listamönnum með því að slá inn nafn viðkomandi í leitarglugga . Lagið er pródúserað og tekið upp af Marteini Hjartarsyni, betur þekktum sem Bngrboy, og mix og mastering var í höndum Starra Snæs Valdimarssonar. GDRN og Birnir hafa áður unnið saman að tónlist og síðast á laginu Sýna mér, sem kom út á plötu Birnis og var einnig unnið í samstarfi við Martein. View this post on Instagram A post shared by GDRN (@eyfjord) Tónlistarmyndbandið var tekið upp þann 31. maí í Studio Syrlandi og er leikstýrt af Gesti Sveinssyni, GDRN og Hákoni Erni Helgasyni. Gestur Sveinsson sá jafnframt um kvikmyndatöku, en Hákon Örn Helgason og Gestur Sveinsson unnu saman að klippingu og litgreiningu myndbandsins. „Tónlistarmyndbandið var unnið með frábæru fólki sem var tilbúið að prófa ólíkar nálganir til að ná fram þeirri útkomu sem við vildum, sem skilaði sér svo sannarlega,“ bætir Guðrún Ýr við en myndbandið er tekið upp í svokölluðum „one shot“ stíl, þar sem engin klipping á sér stað og allt er tekið upp í einni samfelldri töku. Lýsingin spilar þar lykilhlutverk í heildarútliti og stemningu myndbandsins, þar sem unnið er markvisst með birtu og tilfinningar í hverri lýsingaruppsetningu fyrir sig. „Að verkefninu kom einnig mikið fagfólk til sögu; Andri Marino Karlsson sem gaffer, Guðsteinn Grétar Jónsson sem grip og aðstoðarmaður við myndatöku, Sunna Björk Erlingsdóttir sá um förðun, Bjartey Elín Hauksdóttir var danshöfundur og Sigríður Ágústa ásamt Rubinu Singh Arnoddsdóttur sáu um búninga,“ segir Guðrún Ýr að lokum.
Vísir hefur á undanförnum árum frumsýnt mörg hundruð tónlistarmyndbanda sem finna má á sjónvarpsvef Vísis. Þar má sömuleiðis finna hvers kyns myndbönd með einstaka listamönnum með því að slá inn nafn viðkomandi í leitarglugga .
Tónlist Tónlistarmyndbönd Mest lesið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Lífið Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Lífið Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira