Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar 9. júní 2026 19:05 Það var svolítið sérstakt að horfa á sendiherrann Stefán Hauk Jóhannesson í Silfrinu á RÚV í gærkvöld ræða umsókn og innlimunarferli Íslands í ESB eftir umsóknina 2009. Hann lýsir þar allt öðru ferli en við kynntumst sem bárum faglega og stjórnsýslulega ráðherraábyrgð í samningum um sjávarútvegsmál og landbúnað. Kemur svo sem ekki á óvart því oft var litið á „forystu“ samninganefndar Íslands sem fulltrúa ESB við borðið. Það er hins vegar rétt að ég sem ráðherra málaflokkanna setti það sem skilyrði fyrir faglegri vinnu kaflanna að lögum, reglum og stofnanagerð yrði ekki breytt í ferlinu. Við hins vegar réðum engu um hraða, vegferð eða skilyrði ESB. Þau voru í reynd fyrir fram ákveðin með umsókninni sjálfri, sem lögð var fram án allra fyrirvara. Ég sem ráðherra beitti hins vegar ákvæðum þingsályktunarinnar og fyrirvörum sem þar voru settir. Var tekist hart á um það og hér væri ekki farið samkvæmt þeim reglum og skilyrðum sem Ísland hefði fallist á með skilyrðislausri umsókn sinni. Mér var ítrekað brigslað um svik og að hindra framgang inngönguferlisins vegna þeirrar afstöðu. Þær deilur birtust meðal annars í meðferð IPA-styrkjanna. Reynt var að komast fram hjá ráðuneytinu með IPA-styrkina sem ætlað var að greiða fyrir breytingum á stofnunum sem hluta af aðlögunarferlinu. Var lítið vinsælt þegar ég skipaði svo fyrir að þeir skyldu endurgreiddir og ekki tekið við. Ýmis önnur ráðuneyti þáðu milljarða frá ESB til að létta undir í aðlögunarferlinu. Fyrirvararnir af minni hálfu voru skýrir samkvæmt þingsályktun Alþingis frá 2009. Þeir snerust ekki um smáatriði heldur grundvallarforræði Íslands yfir auðlindum sínum og hafsvæðum. Fyrirvarar í sjávarútvegi voru skýrir eins og Alþingi hafði sett. Full og ótvíræð yfirráð, ábyrgð og stjórnun á verndun og nýtingu fiskistofna og annarra sjávardýra í efnahagslögsögunni og öðru er viðkemur lífríki hafsins. Færum með eigin fullveldisrétt í samningum við önnur ríki um deilistofna eða veiðum á nýjum fisktegundum, sjávardýrum og auðlindum innan lögsögunnar. Íslendingar færu með sjálfstætt forræði á hafréttarmálum í samskiptum við aðrar þjóðir og á alþjóðavettvangi. Að Íslendingar færu með forræði á auðlindum á hafsbotninum innan efnahagslögsögunnar og ættu sjálfstæðan rétt til samninga um verndun og nýtingu auðlinda á landgrunninu og Atlantshafshryggnum í hafinu kringum Ísland. Skýr takmörk á möguleikum erlendra aðila til fjárfestinga í innlendum sjávarútvegi og vinnslu Á sama tíma streymdi verulegt fjármagn frá Evrópusambandinu inn í verkefni og starfsemi sem tengdist aðlögunarferlinu með einum eða öðrum hætti. Ekki veit ég hvort Ríkisútvarpið hafi verið ein af þeim stofnunum sem þáðu IPA-styrkina og ferðastyrkina til Brussel og aðlögunarféð á þessum árum frá Evrópusambandinu. En það var með ólíkindum hvernig áróðursfjármagn frá ESB flæddi inn í landið á þessum árum. „Glerperlur“ kölluðu sumir ferðastyrkina og „brúnu umslögin“ á flugvellinum. Gætum átt nýja bylgju í vændum í þeim efnum. Höfundur er fyrrverandi sjávarútvegsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar