Sport

Óttast slys í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það verður áhugavert að sjá hvernig stelpurnar okkar spjara sig gegn heimsmeisturunum í kvöld. Spánn verður að vinna leikinn.
Það verður áhugavert að sjá hvernig stelpurnar okkar spjara sig gegn heimsmeisturunum í kvöld. Spánn verður að vinna leikinn. vísir/diego

Ísland gegn heimsmeisturum er þema kvöldsins en Gunnlaugur Árni Sveinsson átti sviðið í gær.

Gunnlaugur Árni skráð sig í sögubækurnar með því að vera fyrsti íslenski karlkylfingurinn sem kemst á US Open og það er meira afrek en flestir gera sér grein fyrir því. Strákarnir fara vel yfir það í Besta sætinu í dag.

Svo er það heimsmeistaraþema kvöldsins. Kvennalið Íslands tekur á móti heimsmeisturum Spánar í Laugardalnum í kvöld á meðan karlaliðið spilar við heimsmeistara Argentínu í nótt. Sá leikur í beinni á Sýn Sport klukkan eitt yfir miðnætti.

Úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar er á lífi eftir sigur Spurs í MSG í gær. Trump mætti og lagði sig aðeins í leiðinni.

Svo er dregið í riðla fyrir HM í handbolta á morgun. Engir Ungverjar verða í pottinum en Tyrkir verða þar í fyrsta skipti. Áhugavert.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×