Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. júní 2026 17:44 Kolbeinn Tumi Daðason les kvöldfréttir í kvöld. vísir Börn í brottfararstöð verða í brennidepli í kvöldfréttum Sýnar. Umræða um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð hefur ekki verið í átakafarvegi í þinginu en utan þings hafa ýmsir gagnrýnt harðlega að börn verði vistuð í stöðinni. Í kvöldfréttum mætast þau Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem munu eiga opið og hreinskiptið samtal um málið.
Sprengjum rigndi á víxl í Ísrael og Íran í gærkvöldi og nótt en það sem af er degi hafa engar fregnir borist af árásum en Bandaríkjaforseti sendi þeim tóninn í morgun. Við förum yfir þróunina í kvöldfréttum og hlýðum á sjónvarpsávarp forsætisráðherra Ísraels. Bæta ætti þjónustu við konur sem leita sér aðstoðar í Konukoti í Ármúla fremur en að skrímslavæða þær í fjölmiðlum. Þetta segir framkvæmdastjóri Rótarinnar sem fullyrðir að fréttaflutningur af ófremdarástandi í götunni standist ekki skoðun. Við verðum í beinni útsendingu frá Alþingi þar sem Evrópumálin hafa verið fyrirferðarmikil og ræðum við þingflokksformenn um þinglokasamninga. Við sýnum myndefni frá brunavettvangi í Álfsnesi þar sem timburkurlari brann til kaldra kola en talsmenn Sorpu meta tjónið á hundrað milljónir og hafa ekki minnstu hugmynd um hvernig kviknaði í. Þá verðum við í beinni útsendingu frá Listahátíð í Reykjavík sem er í fullum gangi. Og í sportpakkanum segjum við frá því að Knattspyrnudeild Víkings nýtti sér undanþágu frá KSÍ til að sækja sér reynslubolta í markið. Ögmundur Kristinsson kveðst hungraður í titla. Emil Pálsson, sem lagði knattspyrnuskóna á hilluna eftir að hafa í tvígang farið í hjartastopp, telur sömu spurningar nú vera uppi hjá Christian Eriksen sem hneig niður í annað skipti með danska landsliðinu í gær. Meira um málið í sportpakka kvöldsins. Í Íslandi í dag hittum við vini og samstarfsfélaga sem létu drauminn rætast og stofnuðu eigið snyrtivörufyrirtæki. Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu 18:30.
Kvöldfréttir Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Sjá meira