Uppskrift að lakari samkeppnishæfni fiskeldis Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar 9. júní 2026 08:43 Fiskeldi hefur á undanförnum árum þróast úr tiltölulega smárri atvinnugrein í mikilvæga stoð í íslensku atvinnulífi. Útflutningsverðmæti eldisafurða hafa farið yfir 50 milljarða króna á ári og greinin er orðin ein af stærstu útflutningsgreinum landsins. Þúsundir starfa byggjast með beinum eða óbeinum hætti á starfseminni og framtíðarhorfur eru góðar sé rétt á spilum haldið. Á Íslandi hefur sjaldan verið mikilvægara að huga að því hvernig við byggjum upp nýjar útflutningsgreinar. Ferðaþjónustan hefur verið öflug driffjöður hagvaxtar um árabil og sjávarútvegur er áfram ein mikilvægasta undirstaða gjaldeyrissköpunar þjóðarinnar. En til framtíðar þarf hagkerfið fleiri stoðir. Þar blasir fiskeldi við sem ein stærsta vaxtargrein landsins. Étum ekki útsæðið – fyrirhuguð gjaldtaka Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa lýst miklum áhyggjum af fyrirliggjandi frumvarpi um lagareldi og telja þörf á mikilvægum breytingum á því ef treysta á uppbyggingu verðmætasköpunar í fiskeldi. Þótt markmið um sjálfbæra nýtingu auðlinda, ítarlegt eftirlit og umhverfisvernd séu bæði eðlileg og nauðsynleg er óhjákvæmilegt að horfa til þess hvort gjaldtaka og regluverk styðji eða hamli þeirri uppbyggingu sem stjórnvöld segjast vilja sjá. Meginvandinn er sá að fyrirhuguð gjaldtaka tekur ekkert tillit til raunverulegrar afkomu greinarinnar, þrátt fyrir að það hafi verið markmið frumvarpsins. Á árunum 2023 til 2025 nam samanlagt rekstrartap fyrirtækja í sjókvíaeldi tæpum 20 milljörðum króna. Á sama tíma greiddu fyrirtækin yfir 6 milljarða króna í sértæk gjöld og skatta til ríkis og sveitarfélaga. Vandfundin er atvinnugrein þar sem fyrirtæki í taprekstri greiða svo há sértæk gjöld. En það er líka erfitt að finna atvinnugrein sem hefur jafn mikla getu til að auka útflutningstekjur og ýta undir fjárfestingu í skynsamlegu gjalda- og regluumhverfi. Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar rætt er um auðlindagjöld og sérstaka skattheimtu. Slík gjöld eru almennt réttlætanleg þegar um er að ræða umframávöxtun eða auðlindarentu. En þegar arðsemi greinarinnar hefur verið lítil eða engin um árabil vakna eðlilega þær áhyggjur að verið sé að leggja skatta á fjárfestingu og áhættutöku. Það er háskaleikur. Skattheimta mest á Íslandi – skert samkeppnishæfni Samanburður við önnur lönd eykur enn á þessar áhyggjur. Í greiningu norska ráðgjafarfyrirtækisins Menon Economics, sem fylgdi umsögn SFS um frumvarpið, kemur fram að fyrirhugað íslenskt skattkerfi á fiskeldi verði meira íþyngjandi en skattkerfi helstu samkeppnislanda þegar tekið er tillit til þess að íslensk framleiðsla býr við hærri kostnað og almennt lægra afurðaverð en framleiðendur í Noregi og Færeyjum. Sérstaklega er bent á að lágmarksgjald í frumvarpinu valdi því að stór hluti skattbyrðinnar verði í reynd óháður afkomu fyrirtækja. Myndin hér að neðan tekur af allan vafa um þetta. Afleiðing boðaðrar aðferðar frumvarpsins er sú að íslensk fyrirtæki munu standa frammi fyrir meiri skattheimtu en samkeppnisaðilar á sama tíma og framlegð þeirra er minni. Það er rakin uppskrift að lakari samkeppnishæfni. Skattheimtan verður skaðlegri þegar verr gengur Greining Menon bendir jafnframt á að í núllhagnaðarstöðu, þegar tekjur standa rétt undir kostnaði, verði skattbyrði samkvæmt íslenska kerfinu meiri en í samanburðarlöndum. Með öðrum orðum, þegar fyrirtækin hafa minnst bolmagn til að bera kostnaðinn er gjaldtakan hlutfallslega þyngst. Slíkt fyrirkomulag hindrar fjárfestingu og langtímauppbyggingu. Norðmenn, sem stundað hafa fiskeldi í áratugi, tóku nýverið upp sérstaka auðlindagjaldtöku. Fiskeldi þar í landi er löngu orðið rótgróið og hefur yfirburði í framleiðslu á laxi á heimsvísu. Karen Ulltveit-Moe, prófessor við Háskólann í Ósló og formaður nefndar í Noregi um auðlindarentuskatt í fiskeldi, hefur lagt áherslu á að slík skattlagning verði að taka mið af raunverulegri afkomu. Rætt var við hana í Kastljósi 21. október 2024, en hún kom hingað til lands á vegum Alþýðusambands Íslands til að fjalla um auðlindarentu í fiskeldi í Noregi. Hún benti á að norska kerfið væri byggt upp þannig að ríkið tæki hlutdeild í hagnaði þegar vel gengi, en bæri jafnframt hluta af tapinu þegar illa gengi: „Ég held að það sé mikilvægt að vera með skattlagningu sem skekkir ekki myndina. Skatturinn sem við höfum [í Noregi] tekur sneið af hagnaðinum, svo að ef hagnaðurinn er enginn eða tap ber ríkið það líka. Svo að ríkið kemur að og tekur við hluta velgengninnar og hluta af tapinu.“ Þetta er kjarni málsins. Auðlindagjald sem á að byggja á auðlindarentu verður að taka mið af hagnaði, en ekki leggjast með þunga á rekstur þegar illa árar. Mikil fjárfestingarþörf framundan Ólíkt mörgum eldri atvinnugreinum þarf fiskeldi áfram á miklu fjármagni að halda til að fjárfesta í búnaði, innviðum, tæknilausnum, umhverfisvöktun, markaðsstarfi og frekari þróun, enda er greinin enn á uppbyggingarstigi. Fyrir liggja áform um fjárfestingar sem nema tugum milljarða króna á næstu árum. Takist vel til gæti framleiðsla aukist verulega, útflutningsverðmæti margfaldast og hundruð nýrra starfa orðið til, sérstaklega á landsbyggðinni. Á myndinni má sjá hvernig unnt er með skynsamlegum hætti að treysta þessa verðmætasköpun. Það þarf enn fremur að hafa í huga að íslenskt fiskeldi býr við aðrar og erfiðari aðstæður en keppinautarnir. Sjórinn er kaldari, framleiðsluferlar lengri og fjarlægðir til markaða meiri. Þar að auki er stoðkerfi greinarinnar enn að byggjast upp. Þessar aðstæður kalla ekki á lakara regluverk eða minni kröfur, heldur á skynsamlegt jafnvægi milli samfélagslegra hagsmuna og samkeppnishæfni atvinnugreinarinnar. Ekki valkostur að veikja samkeppnisstöðu Auðvitað á atvinnugrein sem nýtir sameiginlegar auðlindir að greiða sanngjarnt auðlindagjald. En gjaldtaka verður að taka mið af raunverulegri afkomu, fjárfestingarþörf og samkeppnisstöðu. Hún má ekki verða svo íþyngjandi að hún dragi úr getu og vilja fyrirtækja til að fjárfesta, skapa störf og byggja upp verðmæti. Afleiðingarnar geta þá auðvitað ekki orðið aðrar en minni skatttekjur ríkis og sveitarfélaga til lengri framtíðar. Spurningin sem Alþingi þarf að svara er því ekki hvort fiskeldi eigi að greiða gjöld. Spurningin er hvort við ætlum að móta umgjörð sem gerir greininni kleift að verða nýr burðarstólpi íslensks útflutnings, eða hvort við ætlum að leggja á hana byrðar sem draga úr fjárfestingum og veikja samkeppnisstöðu hennar. Eigi hið fyrrgreinda að verða möguleiki verður Alþingi að gera breytingar á fyrirliggjandi frumvarpi og draga úr hættulegum áformum um skattheimtu. Óbreyttu frumvarpi verður ekki lýst öðruvísi en sem aðför að verðmætasköpun og uppbyggingu samfélaga, sér í lagi á Vestfjörðum og Austurlandi. Það er til mikils að vinna. En þá þarf regluverkið að styðja við uppbyggingu – ekki standa í vegi fyrir henni. Höfundur er framkvæmdastjóri SFS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiðrún Lind Marteinsdóttir Fiskeldi Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar