„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar 5. júní 2026 11:01 Á Alþingi standa nú yfir umræður um forgangsröðun í samgöngumálum. Það er eðlilegt. Fjármunir eru takmarkaðir og verkefnin mörg. En þegar kemur að Fjarðarheiðargöngum er hætt við að umræðan verði of þröng. Hún snýst nefnilega ekki aðeins um vegaframkvæmd. Hún snýst um öryggi. Seyðisfjörður býr við aðstæður sem fá önnur íslensk samfélög þekkja. Þar mætast tvær ólíkar en raunverulegar hættur. Annars vegar náttúruvá í formi aurskriða og snjóflóða sem hafa þegar valdið miklu eigna tjóni og tekið fjölmörg mannslíf í gegn um aldirnar. Hins vegar einangrun vegna þess að eina landleiðin út úr bænum lokast reglulega vegna veðurs og snjóþyngsla á Fjarðarheiði. Hvorugt þessara atriða eru umdeild. Um það liggja fyrir reynsla aldanna, mælingar og skýrslur. Spurningin sem Alþingi þarf að svara er því ekki hvort hættan sé til staðar. Spurningin er hvort íslenska ríkið telji ásættanlegt að samfélag búi áfram við þá stöðu að eina landtengingin geti lokast á sama tíma og þörf skapast á rýmingu eða umfangsmiklum viðbrögðum vegna náttúruvár. Þetta er ekki fræðilegt álitaefni. Íbúar Seyðisfjarðar hafa upplifað það á eigin skinni hvað gerist þegar náttúruöflin sýna mátt sinn. Þeir vita að hættan er raunveruleg. Þeir vita líka að samgöngur eru ekki aðeins spurning um þægindi eða styttingu ferðatíma. Þær eru hluti af öryggisinnviðum samfélagsins. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað bent á að ríki geti borið ábyrgð þegar þau hafa vitneskju um fyrirsjáanlega hættu en bregðast ekki við með fullnægjandi hætti. Dómarnir snúast ekki um einstakar framkvæmdir heldur þá grundvallarskyldu stjórnvalda að vernda líf og öryggi borgaranna þegar hættan er þekkt. Enginn getur fullyrt að mannréttindasáttmáli Evrópu krefjist Fjarðarheiðarganga. En jafnframt verður sífellt erfiðara að halda því fram að ríkið geti horft fram hjá þeirri sérstöðu sem Seyðisfjörður býr við. Ef Fjarðarheiðargöng verða tekin af dagskrá er eðlilegt að spurt sé: Hver er þá lausnin? Hvaða varanlegu ráðstafana hyggjast stjórnvöld grípa til til að tryggja örugga rýmingu bæjarins? Hvernig verður tryggt að viðbragðsaðilar komist á vettvang þegar mest á reynir? Hvaða önnur framkvæmd á að leysa það hlutverk sem göngunum er ætlað að gegna? Og síðast en ekki síst: Hvenær verður sú lausn tilbúin? Það er ekki nóg að segja nei við Fjarðarheiðargöngum. Ábyrg stjórnvöld verða að geta sagt hvað kemur í staðinn. Á meðan því er ósvarað er ekki verið að fresta vegaframkvæmd. Þá er verið að fresta lausn á öryggisvanda sem hefur verið þekktur árum og öldum saman. Þingmenn sem nú fjalla um samgönguáætlun standa því frammi fyrir stærri spurningu en þeirri hvort ráðast eigi í Fjarðarheiðargöng. Þeir þurfa að svara því hvort þeir telji að núverandi staða veiti íbúum Seyðisfjarðar það öryggi sem þeir eiga rétt á að njóta. Ef svarið er nei, þá er ekki lengur hægt að fresta ákvörðuninni um að ráðast í Fjarðarheiðargöng, sem eru fullhönnuð og tilbúin til útboðs og fyrst í röðinni samkvæmt fyrri ákvörðun hins háa Alþingis. Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi Múlaþings og fyrrverandi sýslumaður á Austurlandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar