Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 5. júní 2026 10:03 Nýkjörin bæjarstjórn krefst þess að stjórnvöld stigi fram úr skugga Þórkötlu. Aðsend Nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur sakar stjórnvöld um að beita Þórkötlu vísvitandi fyrir sig til að tefja endurreisn Grindavíkur og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim.
Í tilkynningu sem bæjarstjórnin sendi frá sér í morgun segir að bæjarstjórn hafi fundað með stjórn og framkvæmdastjóra Þórkötlu á miðvikudaginn. Farið hafi verið yfir stöðu húsnæðismála, fasteignakaup og framtíðaráform félagsins í bænum. „Þótt fundurinn hafi verið um margt gagnlegur, staðfesti hann þann rökstudda grun bæjaryfirvalda að það er ekki Fasteignafélagið Þórkatla sem stendur í vegi fyrir lausnum fyrir Grindvíkinga, heldur stjórnvöld. Á fundinum kom skýrt fram af hálfu fulltrúa Þórkötlu að félagið sé nánast að fullu í eigu ríkisins og þurfi að lúta vilja eiganda síns þegar kemur að stórum ákvörðunum um endurkaup og búsetu. Það er vitað að fasteignafélagið hafði fyrir nokkru unnið að útfærslum á endurkaupum og lausnum fyrir íbúa og var ekkert því til fyrirstöðu strax í mars að kynna þær útfærslur,“ segir í tilkynningunni. Stjórnvöld hafi hins vegar staðið í vegi fyrir því. í stað þess að greiða götu þeirra sem vilja og geta snúið heim, sé þrengt enn frekar að íbúum. Frá og með 1. september verður heimild fyrrverandi eigenda fasteigna í Grindavík til dvalar í bænum takmörkuð við tólf nætur á mánuði. Bæjarstjórn segir þetta munu hafa verulega neikvæð áhrif á samfélagið, viðhald eigna og lífið í bænum. Dvalarsamningarnir hafi verið mörgum líflína og mikilvægt skref til að máta sig við aðstæður í heimabænum á meðan beðið var eftir endurkaupasamningum. „Bæjarstjórn lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá neikvæðu og fjandsamlegu afstöðu sem stjórnvöld sýna gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarfélagsins. Stjórnvöld hafa skýlt sér á bak við áhættumat sem unnið hefur verið án aðkomu eða samráðs við sveitarfélagið og tekur lítið sem ekkert tillit til þeirra miklu mótvægisaðgerða sem þegar hefur verið ráðist í af hálfu bæjarins.“ „Ný bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að ríkisstjórnin stígi fram úr skugga Þórkötlu og tali skýrt við heimamenn. Grindavíkurbær er tilbúinn til samstarfs um raunhæfar lausnir og krefst þess að heimkoma þeirra Grindvíkinga sem hennar óska, verði ekki tafin að óþörfu.“
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira