Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. júní 2026 16:40 Natasha S. verðlaunahafi Maístjörnunnar 2026. Aðsend Natasha S. hlýtur Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafns Íslands, fyrir bókina Mara kemur í heimsókn. Verðlaunin voru veitt í tíunda skiptið í dag við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni. Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, persónuleg og pólitísk. Mögnuð lýsing á kvíða, vanmætti og varnarleysi. Ljóðmælandi lærir að lifa með Möru, að gangast við ótta sínum í martraðarkenndum heimi sem er á hvolfi. Leikurinn berst inn á hættusvæði stríðs og ógna en það er líka heimavöllur ljóðmælanda. Ófriðurinn veldur sundrungu, einmitt þegar hluttekningar og samkenndar er þörf. Áleitið verk og tímabært.“ Natasha fæddist í Rússlandi árið 1987 og flutti til Íslands árið 2012. Hún sló í gegn með fyrstu ljóðabók sinni Máltaka á stríðstímum og hlaut fyrir hana Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2022, en sú bók var einnig tilnefnd til Maístjörnunnar sama ár. Natasha er menntuð í blaðamennsku. Árið 2016 útskrifaðist hún frá Háskóla Íslands með BA-gráðu í íslensku sem annað mál og með sænsku sem aukagrein. Hún hefur vakið athygli fyrir ljóð sín, pistla og hugvekjur. Natasha hefur verið öflugur talsmaður skálda af erlendum uppruna á Íslandi og ritstýrði ljóðasafninu Pólífónía af erlendum uppruna og ritgerðasafninu Skáldreka. Hún hefur einnig þýtt íslensk skáldverk á rússnesku. Gjaldgengar til Maístjörnunnar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2025 sem skilað var í skylduskil til Landsbókasafns Íslands. Tilnefndar voru bækurnar: Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson. Útgefandi: Benedikt Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. Útgefandi: Benedikt Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi Mál og menning Félagsland eftir Völu Hauks. Útgefandi Mál og menning Í fréttatilkynningu segir: „Maístjarnan eru einu verðlaunin á Íslandi sem veitt eru fyrir útgefna ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi sem og mikilvægi þess að ljóðabókum sé skilað í skylduskil til Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og varðveitist þannig sem hluti af menningararfi þjóðarinnar.“ Dómnefnd skipuðu Áslaug Jónsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins, Tómas Ævar Ólafsson fyrir hönd Landsbókasafns og Sveinn Yngvi Egilsson fyrir Háskóla Íslands. Verðlaunafé er 700 þúsund krónur og að þessu sinni styrkir íslenska leikjafyrirtækið CCP hf verðlaunin. Ljóðlist Menning Bókmenntir Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Fleiri fréttir Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira
Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, persónuleg og pólitísk. Mögnuð lýsing á kvíða, vanmætti og varnarleysi. Ljóðmælandi lærir að lifa með Möru, að gangast við ótta sínum í martraðarkenndum heimi sem er á hvolfi. Leikurinn berst inn á hættusvæði stríðs og ógna en það er líka heimavöllur ljóðmælanda. Ófriðurinn veldur sundrungu, einmitt þegar hluttekningar og samkenndar er þörf. Áleitið verk og tímabært.“ Natasha fæddist í Rússlandi árið 1987 og flutti til Íslands árið 2012. Hún sló í gegn með fyrstu ljóðabók sinni Máltaka á stríðstímum og hlaut fyrir hana Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2022, en sú bók var einnig tilnefnd til Maístjörnunnar sama ár. Natasha er menntuð í blaðamennsku. Árið 2016 útskrifaðist hún frá Háskóla Íslands með BA-gráðu í íslensku sem annað mál og með sænsku sem aukagrein. Hún hefur vakið athygli fyrir ljóð sín, pistla og hugvekjur. Natasha hefur verið öflugur talsmaður skálda af erlendum uppruna á Íslandi og ritstýrði ljóðasafninu Pólífónía af erlendum uppruna og ritgerðasafninu Skáldreka. Hún hefur einnig þýtt íslensk skáldverk á rússnesku. Gjaldgengar til Maístjörnunnar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2025 sem skilað var í skylduskil til Landsbókasafns Íslands. Tilnefndar voru bækurnar: Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson. Útgefandi: Benedikt Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. Útgefandi: Benedikt Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi Mál og menning Félagsland eftir Völu Hauks. Útgefandi Mál og menning Í fréttatilkynningu segir: „Maístjarnan eru einu verðlaunin á Íslandi sem veitt eru fyrir útgefna ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi sem og mikilvægi þess að ljóðabókum sé skilað í skylduskil til Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og varðveitist þannig sem hluti af menningararfi þjóðarinnar.“ Dómnefnd skipuðu Áslaug Jónsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins, Tómas Ævar Ólafsson fyrir hönd Landsbókasafns og Sveinn Yngvi Egilsson fyrir Háskóla Íslands. Verðlaunafé er 700 þúsund krónur og að þessu sinni styrkir íslenska leikjafyrirtækið CCP hf verðlaunin.
Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson. Útgefandi: Benedikt Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. Útgefandi: Benedikt Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi Mál og menning Félagsland eftir Völu Hauks. Útgefandi Mál og menning
Ljóðlist Menning Bókmenntir Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Fleiri fréttir Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira