Fær annan skóla undir sinn væng Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júní 2026 16:47 Silja Bára Ómarsdóttir er rektor Háskóla Íslands og þar af leiðandi einnig yfir Háskóla Íslands á Hólum. Vísir/Anton Brink Alþingi hefur samþykkt frumvarp um háskólasamstæður sem felur í sér að Háskóli Íslands og Hólaskóli - Háskólinn á Hólum mega sameinast undir merkjum Háskóla Íslands. Hólaskóli fær heitið Háskóli Íslands á Hólum.
Með nýju lögunum, sem öðlast gildi 1. júlí næstkomandi, verður HÍ að samstæðuháskóla en Háskóli Íslands á Hólum mun starfa sem aðildarháskóli undir þeim fyrrnefnda. „Markmiðið með háskólasamstæðunni er að efla samstarf háskólanna tveggja, styrkja rannsóknir, kennslu og stoðþjónustu og skapa aukin tækifæri til þverfræðilegs samstarfs og þróunar háskólastarfs um allt land,“ segir í fréttatilkynningu frá HÍ. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ, verður þannig yfir báðum skólunum en sérstakur forseti tekur til starfa á Hólum auk sérstakrar stjórnar. „Nú er stigið stórt skref í málefnum háskóla á Íslandi með mótun fyrstu háskólasamstæðu landsins. Í samstæðunni felast tækifæri til að einfalda og styrkja háskólakerfið, endurskoða og auka námsframboð og efla háskólamenntun og tengsl atvinnulífs um allt land,“ er haft eftir Silju Báru í tilkynningunni. Háskóli Íslands tekur við eignum, skuldbindingum og starfsemi Háskólans á Hólum. Nemendur og starfsfólk munu flytjast yfir þann 1. júlí en nemendurnir halda rétti sínum til að ljúka námi samkvæmt gildandi námsleiðum. „Ég er gríðarlega ánægð með að Alþingi Íslendinga hafi samþykkt frumvarp sem heimilar háskólum að sameinast undir hatti háskólasamstæðu,“ er haft eftir Hólmfríði Sveinsdóttur, fráfarandi rektor Háskólans á Hólum.
Háskólar Alþingi Skóla- og menntamál Skagafjörður Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira