Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar 1. júní 2026 14:28 Í dag á ég afmæli og á slíkum tímamótum er gott að líta yfir farinn veg. Ég er 45 ára og hef unnið hálfa ævina sem flugmaður hjá Icelandair. Þessi tími er búinn að vera frábær en undanfarin misseri hafa kallað á það að ég velti framtíð minni hjá félaginu fyrir mér. Flugið er fallvaltur heimur. Við flugmenn erum fyrst frá borði þegar seglin dragast saman hvort sem það er vegna vetraruppsagna sökum árstíðarsveiflna eða áfalla eins og bankahruns, kyrrsetninga véla, heimsfaraldurs eða stríðs. Við nýtum uppsagnir iðulega til að afla okkur frekari menntunar eða sækja á ný mið. Engu að síður komum við flugmenn Icelandair yfirleitt öll aftur til baka. Hvers vegna? Jú, við elskum starfið okkar. Okkur þykir gríðarlega vænt um Icelandair og erum stolt af hlutverkinu sem það gegnir fyrir samfélagið. Það er því sárt að heyra því haldið fram að ásetningur okkar sé að skaða félagið. Þvert á móti eigum við allt okkar undir því að Icelandair gangi vel. Til að verða flugmaður þarf að leggja heilmikið á sig. Námið er krefjandi og kostar mikla fjármuni. Starfið krefst stöðugrar endurmenntunar, strangra læknisskoðana og reglulegra hæfniprófa. Við vinnum undir einhverjum ströngustu öryggiskröfum sem þekkjast í atvinnulífinu og erum mjög meðvituð um hversu dýrkeypt mistök okkar geta verið. Við leggjum okkur fram um að mæta vel hvíld og hraust til vinnu, ávallt með flugöryggi að leiðarljósi. Við leggjum mikinn metnað í að halda rekstrinum gangandi, oft við mjög krefjandi aðstæður með líkamsklukkuna týnda í óræðu tímabelti. Flug er alþjóðlegt umhverfi og okkur er ljóst að samkeppnin er mikil. Milli flugmanna í heiminum ríkir hins vegar samkennd og samstarf. Í gegnum alþjóðleg samtök rýna flugmenn í starfsumhverfi og kjör. Við getum því auðveldlega leyft okkur að hrista hausinn yfir fjarstæðukenndum fullyrðingum um að kjör okkar séu á einhvern hátt umfram það sem eðlilegt getur talist. Þvert á móti er staðan sú að fáir flugmenn á heimsvísu búa við jafn mikið vinnuálag og jafn lítinn fyrirsjáanleika og flugmenn Icelandair. Við fljúgum frá eyju í Atlantshafi sem hefur þá sérstöðu að geta tengt saman austur og vestur á hagkvæman hátt. Það þýðir líka að flugmenn félagsins ferðast um mörg tímabelti fram og til baka mörgum sinnum í mánuði. Sem dæmi lendum við frá Bandaríkjunum á sunnudagsmorgni eftir langt næturflug en erum mætt í morgunflug til Zürich eldsnemma á þriðjudegi. Tökum svo jafnvel næturflug til Evrópu á miðvikudegi og förum til Kanada á föstudegi. Því miður er ekki hægt að þjálfa sig upp í að þola svefnleysi. Að ná betur utan um hvíld er helsta krafa okkar í yfirstandandi samningaviðræðum. Það er enginn að tala um laun. Flugmenn fá eitt helgarfrí í mánuði. Fyrir þetta eina helgarfrí erum við jafnvel að lenda frá Seattle með tímamismun upp á 7–8 klukkustundir. Flugþreytan fylgir þér í nokkra daga. Þú hittir engan hlaupahóp á laugardagsmorgni og ert líklega utan við þig á fótboltamóti um miðjan dag. Fyrst á sunnudeginum ertu farinn að líkjast sjálfum þér enda eins gott því nýtt flug bíður á mánudegi. Þetta var þitt eina helgarfrí í mánuðinum. Fyrir utan það áttu einn stakan frídag um helgi og 6 daga að auki í miðri viku. Hvar frídagar lenda er ekki endilega á þínu valdi. Stór hluti flugmanna fær frídagaóskir sínar ekki uppfylltar og missir af mikilvægum viðburðum með fjölskyldum sínum. Nú fer fyrirtækið fram á enn meiri nýtingu, styttri hvíld og aukið svigrúm á sama tíma og heilsu flugmanna fer hrakandi. Liðsmenn eru þreyttir og hafa ítrekað óskað eftir minna álagi. Þetta sýna aukin langtímaveikindi og fjöldi þreytuskýrslna. Hvers vegna ekki er hlustað á viðvaranir starfsfólks er okkur óskiljanlegt. Krafa flugmanna er skýr. Við þurfum betri hvíld til að geta viðhaldið heilsu og flugöryggi. Við þurfum fyrirsjáanleika í vinnuumhverfi okkar til að geta stuðlað að hamingjuríku einkalífi. Núverandi álag er of mikið og við stöndum ekki undir því lengur. „Við erum öll í sama liði“ er slagorð Icelandair. Ég legg mig fram um að mæta á allar æfingar hvort sem þær eru á jólum eða áramótum, nóttu eða degi. Ég hef reynt að hlaupa hraðar og miða betur. Engu að síður er ég úthrópuð af þjálfara liðsins. Hvort sem það er kominn tími til að skipta mér út eða öðrum í liðinu verða aðrir að dæma um en það er ljóst að eitthvað þarf að breytast. Höfundur er afmælisbarn og flugstjóri hjá Icelandair. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Skoðun Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun