Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar 29. maí 2026 09:32 Ég er rúmlega tvítug. Ég er á þeim aldri að framtíðin er mér mjög hugleikin. Á sama tíma og ég er að mennta mig, velti ég því fyrir mér hvort ég geti byggt upp gott líf á Íslandi. Ég elska landið mitt. En þetta er land sem gerir okkur mörgum erfitt að búa í. „Dýrasta land í heimi“ er titill sem rann til Íslands um daginn og hefur oft gert það áður. Ekki beint verðlaunapallur sem gott er að vera á. Verðlag og verðbólga. Verðtrygging og vextir. Vandi Íslendinga er meiri en annarra þegar kemur að þessum atriðum. Ekki síst hjá ungu fólki. Þess vegna vil ég að við þorum að horfa lengra en til næstu kosninga. Ég vil horfa áratugi fram í tímann. Og ég vil að Ísland hætti að verja ítrekað titillinn „dýrasta land í heimi“. Að hræðast samtalið Nú fáum við einmitt tækifæri til að líta aðeins fram í tímann. Í átt að lífskjörum sem gæti verið spennandi að stefna að. Að segja já við að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið er ekki endanleg ákvörðun um að ganga í ESB. Atkvæðagreiðslan í ágúst er ákvörðun um að fá staðreyndir á borðið. Að vita hvað stendur okkur til boða. Að fá samning og leggja hann síðan undir þjóðina. Mér finnst ótrúlegt að sumir hræðist jafnvel samtalið sjálft. Fyrir mína kynslóð snýst þetta um lífskjör. Við búum við hátt verðlag, fákeppni og litla markaði þar sem of fair hafa of mikil völd. Við borgum meira en ungt fólk í mörgum löndum í kringum okkur gerir. Við erum alin upp við að heyra að þetta sé bara „Ísland“. En hvers vegna eigum við að sætta okkur við það? Af hverju eigum við ekki að kanna hvort nánara samstarf við Evrópu geti þýtt lægra verð, lægri vexti, meiri samkeppni, stöðugri gjaldmiðil og betri tækifæri? Þetta snýst líka um öryggi. Heimurinn er orðinn ótryggari. Stríð er í Evrópu. Lýðræði er víða undir þrýstingi. Smáríki eins og Ísland standa ekki sterk ein og sér, heldur með vinaþjóðum sem deila gildum okkar um lýðræði, mannréttindi og jafnrétti. Við eigum að verja framtíð okkar með þeim sem standa okkur næst. Það er Evrópa. Eldri kynslóð ákveður fyrir þá ungu Ég hugsa stundum um Brexit. Þar tóku eldri kynslóðir ákvörðun sem unga fólkið þarf síðan að lifa með. Margir ungir Bretar misstu réttindi, tækifæri og frelsi sem þeir höfðu tekið sem sjálfsögðum hlut. Ég vil ekki að mín kynslóð lendi í því sama. Að aðrir loki dyrum áður en við fáum einu sinni að sjá hvað er hinum megin. Auðvitað eigum við að spyrja erfiðra spurninga. Auðvitað eigum við að verja hagsmuni Íslands, sjávarútveg, landbúnað og fullveldi. En besta leiðin til þess er ekki að neita að ræða og segja afdrifaríkt nei áður en samtalið hefst. Besta leiðin er að kanna og semja og leyfa síðan þjóðinni að taka upplýsta ákvörðun. Ég er ekki að segja að það eigi að segja já við inngöngu í ESB. Ég er einungis að óska eftir að við segjum já við því að skoða framtíðina af alvöru. Já við samtali. Já við upplýsingum. Já við því að ungt fólk fái að eiga rödd í ákvörðun sem mun móta líf okkar næstu áratugi. Ekki taka það val frá okkur. Höfundur er verkfræðinemi við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar