Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Bjarki Sigurðsson skrifar 27. maí 2026 18:15 Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir í kvöld. vísir Nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur í Viðey í dag. Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs í eitt ár og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar. Einar og Björg munu svo eiga stólaskipti.
Hildur mætir í myndver í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30 og ræðir viðræðurnar og áherslur nýs meirihluta. Miðflokksmenn hafa skipst á að koma í pontu í þingsal í dag til að ræða þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ljóst þykir að meirihlutanum liggi á að koma málinu í gegnum þingið svo að fyrirhuguð dagsetning atkvæðagreiðslu standist. Íbúi við Álafoss í Mosfellsbæ segir fólk á svæðinu reitt vegna áhrifa sem borframkvæmdir í Skammadal hafa haft á lífríki Varmár. Veitur stöðvuðu í dag framkvæmdirnar á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum og ætla að kalla til óháða sérfræðinga til að meta áhrifin. Stefnt er að því að nýi Arnarnesvegurinn um Vatnsendahæð verði opnaður að hluta í lok næsta mánaðar og vegurinn í heild í október í haust. Þetta tíu milljarða króna verkefni er stærsta vegagerð á höfuðborgarsvæðinu hin síðari ár. Dósent við lagadeild HR sem gerði rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki var beitt segir að algeng málsvörn gerenda sé að um harkalegt kynlíf hafi verið að ræða. Í einu tilviki hafi gerandi talað um nauðgunarleik sem leikinn hafi verið að frumkvæði brotaþola. Mikil spenna ríkir þessa dagana á Alþingi, ekki vegna umræðu um ESB, heldur vegna þess að lítill fugl hefur lagt í mikla hreiðurgerð í stiga þinghússins. Hafdís Renötudóttir, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals og landsliðskona í handbolta er gríðarlega vonsvikin með niðurstöðu HSÍ í máli er sneri að fordómum í hennar garð í úrslitaeinvígi efstu deildar sökum kynhneigðar hennar. Málið tók sinn toll á Hafdísi sem þurfti að grafa djúpt í leit að styrk. Yngri og yngri börn greinast með átröskun á Íslandi. Yngsta stúlkan sem greinst hefur er aðeins níu ára gömul. Eitt af vandamálunum á Íslandi er að börn og ungmenni eru ekki gripin fyrr en sjúkdómurinn er kominn á mjög alvarlegt stig. Kerfið í raun býður ekki uppá snemmbúið inngrip.
Kvöldfréttir Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira