Lífið

Skraut­legt ein­vígi á Vistabella á Spáni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vinirnir Palli og Raggi kepptu.
Vinirnir Palli og Raggi kepptu.

Á dögunum fór sjötta þáttaröðin af Golfaranum af stað á Sýn+ en í þeim þáttum kynnast þau Hlynur Sigurðsson og Inga Lind Karlsdóttir öllum hliðum golfiðkunar á Íslandi.

Þau hitta áhuga- og afrekskylfinga og fá góð ráð um hvernig bæta má leik, en golf er eins allra vinsælasta íþrótt landsins.

sÞau fræðast líka um golfreglurnar og fá kylfinga til að keppa í skemmtilegum leikjum og þrautum. Þá heimsækja þau golfvelli um allt land sem og í útlöndum. Til að mynda var farið til Spánar í fyrsta þættinum í nýrri þáttaröð.

Kylfingarnir Páll Eyjólfsson og Ragnar Hilmarsson fóru í einvígi á 18.holunni á Vistabella-vellinum á Spáni. Það má með sanni segja að þeim hafi ekki gengið alveg nægilega vel, eða ekki til að byrja með á brautinni eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.