Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Árni Sæberg skrifar 22. maí 2026 07:56 Atli Heiðar á barn sem gengur alla jafna í Vesturbæjarskóla. Vísir Atli Heiðar Gunnlaugsson hefur stigið fram sem „alræmdur faðir“ sem óskaði eftir því að barn hans fengi undanþágu frá kynfræðslu í Vesturbæjarskóla.
Það gerir hann í aðsendri grein hér á Vísi en viðtal við hann og móður barnsins, undir nafnleynd, í Nútímanum í upphafi mánaðar vakti talsverða athygli. Þar kom meðal annars fram að þau hefðu tekið barnið úr skólanum á meðan erindi þeirra til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, þar sem farið var fram á að barnið fengi undanþágu frá kynfræðslu þrátt fyrir neitun skólans, er til meðferðar. Í grein sinni rekur Atli Heiðar samskipti sín við skólann og þá skoðun sína að kyn mannisins séu aðeins tvö. Sú skoðun er í meira lagi umdeild en til að mynda segir í svari Arnars Pálssonar, erfðafræðings og prófessors í lífupplýsingafræði við HÍ, við spurningunni Eru kynin bara tvö? á Vísindavefnum að stutta svarið sé einfalt: Nei. „Fjölbreytileiki er mikill í stofni manna og annarra dýra. Eðlilegast er að hugsa um fjölbreytt róf kyntengdra einkenna, frekar en tvö aðgreind kyn,“ segir meðal annars í svari hans. Stangist á við kristna trú Þá segir Atli Heiðar að hann sé kristinnar trúar og telji það sem kennt er í kynfræðslu í Vesturbæjarskóla stangast á við kristna trú. „Ef það væri svo að vísindalegar staðreyndir sýndu fram á að kynin væru fjölmörg og kyn réðist af huglægum þáttum en ekki hlutlægum myndi ég vitanlega sættast á að barnið fengi kennslu í samræmi við bestu fáanlegu þekkingu. Kristin sérviska foreldranna myndi víkja fyrir menntun og velferð barnsins. En þær kenningar sem kynfræðslan í Vesturbæjarskóla byggja á eru hvorki byggðar á hlutlægum veruleika né vísindalegri þekkingu. Nær væri að tala um veraldleg trúarbrögð.“ Hann telji því að kynfræðslan í Vesturbæjarskóla sé barninu hættuleg og til þess fallin að rugla það í ríminu og valda skaða á sjálfsmynd þess. Stígur fram vegna greinar Ingileifar Þá segir Atli Heiðar að hann hafi ekki ætlað að stíga fram undir nafni með sín sjónarmið en hann hafi ákveðið að ganga fram fyrir skjöldu vegna skoðanagreinar Ingileifar Friðriksdóttur, aðstoðarmanns utanríkisráðherra, sem birtist hér á Vísi. „Ingileif gerir því skóna að ósk okkar, byggð á velferð barnsins, sé óeðlileg og til marks um andstöðu við velferð annarra. Svo er ekki. Ég er aðeins með í huga mitt barn og fer ekki fram á að högum annarra barna sé raskað á einn eða annan hátt. Ingileif á beinna hagsmuna að gæta í málinu. Hún er höfundur bókar um „hinsegin“ sem kennd er í Vesturbæjarskóla. Að sjálfsögðu getur hún þess ekki í Vísisgreininni.“ Í grein sinni, sem Atli Heiðar skrifar um, vísar Ingileif til frétta af því að foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hefðu fjarlægt barnið úr skólanum vegna hinseginfræðslu, í inngangi en minnist að öðru leyti ekki á málið. Þess í stað fjallar hún um mikilvægi sýnileika hinseginleikans og baráttu gegn fordómum í garð þeirra sem tilheyra hinseginsamfélaginu. „Ég fer ekki fram á annað en sanngirni. Ingileif er í valdastöðu í samfélaginu og býr að víðtæku tengslaneti. Í krafti þess talar hún niður til fólks sem er kannski með sína sérvisku – en hvað á þá að kalla hugmyndafræðina sem Ingileif aðhyllist?“ segir Atli Heiðar í lok greinar sinnar. Athugasemd: Í grein sinni segir Atli Heiðar Samtökin '78 koma að kynfræðslu í skólum en það gera þau ekki. Samtökin sinna aftur á móti hinseginfræðslu í fjölda skóla, sem byggir á áherslum aðalnámskrár.
Grunnskólar Hinsegin Jafnréttismál Fjölskyldumál Mannréttindi Tjáningarfrelsi Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira