Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Samúel Karl Ólason skrifar 18. maí 2026 18:52 Elon Musk í Peking Kína í síðustu viku. AP/Mark Schiefelbein Kröfum Elons Musk, auðugasta manns heims, á hendur Sam Altman og gervigreindarfélaginu OpenAI, sem Musk og Altman komu að því að stofna á sínum tíma, hefur verið hafnað. Níu kviðdómendur komust einróma að þeirri niðurstöðu eftir þriggja vikna réttarhöld og vitnisburði beggja auðjöfranna.
Musk hefur sakað Altman og aðra um að „stela góðgerðafélagi“ og plata hann með því að breyta rekstri OpenAI svo það yrði hagnaðardrifið. Auðjöfurinn segir að alltaf hafi staðið til að reka OpenAI í þágu mannkyns. Eins og þekkt er þróaði OpenAI mállíkanið ChatGPT. Lögmenn Altmans og OpenAI segja hins vegar að Musk hafi verið ljóst að til stæði að breyta rekstri félagsins. Hann hefði krafist þess að fá stjórn á félaginu en þegar því hafi verið hafnað hafi hann slitið tengslin við OpenAI í fússi og seinna meir stofnað eigið gervigreindarfyrirtæki. Musk krafðist 22 billjóna króna frá OpenAI. Hann vildi einnig að Altman yrði sparkað úr stjórn fyrirtækisins og það yrði aftur fært í fyrra horf. Sjá einnig: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Það tók kviðdómendur einungis tvær klukkustundir að komast að þeirri niðurstöðu að Musk hefði beðið of lengi með að höfða mál. Hin meintu brot á rétti hans væru fyrnd. Musk höfðaði málið um sumarið 2024 en hin meintu brot eiga að fyrnast á þremur árum. Kviðdómendur komust að þeirri niðurstöðu að Musk hefði verið meðvitaður um ætlanir stjórnenda OpenAI fyrir árið 2021. Um alríkisréttarhöld var að ræða, þar sem kviðdómendur voru í raun í ráðgefandi hlutverki en dómarinn, Yvonne Gonzalez Rogers, var hlynnt niðurstöðu þeirra, samkvæmt AP fréttaveitunni. Lögmaður Musks hefur þegar lýst yfir að hann ætli að áfrýja úrskurðinum, samkvæmt New York Times. Hætti og stofnaði eigið fyrirtæki Musk, Altman og nokkrir vísindamenn á sviði gervigreindar stofnuðu OpenAI fyrir rúmum tíu árum, árið 2015. Félagið er hvað þekktast fyrir ChatGPT mállíkanið, sem fjölmargir nota víðsvegar um heiminn. Á endanum yfirgaf Musk þó félagið og stofnaði sitt eigið gervigreindarfyrirtæki árið 2023 sem heitir xAI. Forsvarsmönnum OpenAI varð fljótt ljóst að félagið þyrfti fúlgur fjár til að þróa gervigreind og til að fjárfesta í nauðsynlegum innviðum hennar, eins og gagnaverum. Var rekstri félagsins því breytt. Verjendur Altmans og OpenAI sögðu við upphaf réttarhaldanna að það hefðu ekki verið Altman og hinir sem vildu hagnast á OpenAI á sínum tíma heldur hafi það verið Musk. Þess vegna hafi hann hætt í fýlu og stofnað sitt eigið fyrirtæki. Sjá einnig: Birta tölvupósta frá Musk Í opnunarávarpi sínu sagði Wiliam Savitt, lögmaður OpenAI, að eina ástæðan fyrir réttarhöldunum væri sú að Musk hefði ekki fengið vilja sínum framgengt varðandi OpenAI. Hann sagði Musk hafa notað hótanir um fjárveitingar gegn öðrum stofnendum til að ná stjórn á félaginu og að hann hafi viljað sameina OpenAI við bílafyrirtækið Tesla.
Gervigreind Elon Musk Bandaríkin Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira