Jafnréttislög í 50 ár Martha Lilja Olsen skrifar 18. maí 2026 14:01 Í dag eru liðin 50 ár frá því að fyrstu heildstæðu jafnréttislögin tóku gildi á Íslandi. Með lögunum árið 1976 var í fyrsta sinn lögfest með skýrum hætti að konur og karlar skyldu njóta jafnra réttinda. Þessi tímamót mörkuðu því sannarlega kaflaskil í íslensku samfélagi. Ísland hefur oft verið nefnt meðal fremstu ríkja heims í jafnréttismálum en sá árangur kom ekki til af sjálfu sér. Að baki liggur áratugalöng barátta kvenna sem kröfðust þess að jöfn staða og jafn réttur kynjanna yrði lögfestur. Á sjöunda og áttunda áratugnum urðu umræður um stöðu kvenna stöðugt háværari á Íslandi. Konur voru almennt lægra launaðar en karlar og höfðu takmarkað aðgengi að áhrifastöðum í samfélaginu. Kvennafrídagurinn árið 1975 varð tákn um þessa óánægju þegar tugþúsundir kvenna lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags þeirra, bæði innan og utan heimilis. Árið eftir voru jafnréttislög samþykkt á Alþingi. Áhrifa kvennafrídagsins gætir enn þann dag í dag og þessi dagur er til marks um baráttu íslenskra kvenna fyrir réttindum og stöðu kvenna og sú barátta heldur áfram enn í dag þó hún sé með öðrum hætti. Á þessum 50 árum hefur margt breyst og lögin hafa tekið breytingum samhliða samfélagsþróun. Hlutfall kvenna í stjórnmálum hefur aukist verulega og þátttaka kvenna á vinnumarkaði er ein sú mesta í heimi. Þrátt fyrir framfarir er hins vegar enn verk að vinna. Gagnrýni á að konur skipi helstu áhrifastöður frekar en karlar endurspeglar að jafnrétti er ekki náð og breytt viðmið um völd og tækifæri er enn samfélagsleg áskorun. Á sama tíma og konur hafa undanfarið verið áberandi í áhrifastöðum hjá hinu opinbera þá verður ekki það sama sagt um almenna markaðinn þar sem aðeins 21,3% æðstu stjórnenda eru konur og aðeins 14% forstjóra skráðra félaga á Nasdaq Iceland eru konur. Kynbundinn launamunur er enn til staðar í öllum geirum samfélagsins og er yfir 26% þar sem hann er mestur. Konur bera ennþá meiri ábyrgð á ólaunaðri umönnunarvinnu og barneignir hafa veruleg áhrif á ævitekjur kvenna og þar með lífeyrisréttindi þeirra til lengri tíma. Kynjaskipting starfa er enn áberandi og ein meginástæða kynbundins launamunar. Þá hafa nýjar áskoranir komið fram, meðal annars tengdar stöðu jaðarsettra hópa og áhrifa samfélagsmiðla þar sem ýtt er undir skaðleg viðhorf, óraunhæfar kröfur og staðalímyndir um hegðun og lífsstíl en þar eru börn og ungmenni sérstaklega útsett. Kynbundið ofbeldi í alls kyns birtingarmyndum er útbreytt vandamál og hefur nú einnig fært sig yfir á hið stafræna svið, sem krefst flókinna viðbragða og samvinnu margra. Konur af erlendum uppruna og fatlaðar konur eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu bæði á vinnumarkaði og daglegu lífi sem sýnir hve margþættar áskoranir eru um að ræða. Saga jafnréttislaga á Íslandi sýnir ótvírætt að samfélagsbreytingar gerast ekki af sjálfu sér. Þær verða til þegar fólk krefst breytinga, stjórnvöld bregðast við og samfélagið ákveður að félagslegt réttlæti skipti máli. Jafnrétti er því og verður alltaf verkefni hverrar kynslóðar og mikilvægt er að við stöndum vörð um áunnin réttindi ásamt því að halda áfram í átt að fullu jafnrétti. Ekkert land í heiminum hefur ennþá náð fullu jafnrétti kynjanna og sem forystuland í jafnréttismálum á heimsvísu er mikilvægt að Ísland haldi áfram að vinna að framþróun jafnréttis. Þar á markmiðið að sjálfsögðu að vera það að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að ná fullu lagalegu og formlegu jafnrétti kynjanna. Jafnrétti verður þó ekki endilega sjálfsögð staðreynd þó svo að fullu lagalegu jafnrétti sé náð, því fullt jafnrétti krefst hugarfars- og viðhorfsbreytingar. Þar verðum við að halda stöðu og vera á verði því að jafnrétti á að vera sjálfsagt í íslensku samfélagi. Ísland hefur verið fyrirmynd í jafnréttismálum á heimsvísu og Ísland á áfram að vera fyrirmyndarland í jafnrétti á heimsvísu. Höfundur er framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar