Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. maí 2026 17:02 Guðný Birna Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Guðný Birna Guðmundsdóttir er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. Ég heiti Guðný Birna Guðmundsdóttir. Ég er 44 ára gömul og er gift Gunnari Þórarinssyni. Börnin okkar eru Guðmundur Dagur 26 ára og Lilja Rún 19 ára. Ég hef búið í Reykjanesbæ alla tíð, fyrst í Keflavík og nú í Njarðvík. Ég er hjúkrunarfræðingur og vann við það fag lengst af á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Ég er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og með MBA gráðu. Ég starfa í dag sem forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Okkar málefni snúa að því að einfalda daglega líf íbúa. Fyrir fyrirtæki einföldum við boðleiðir fyrir íbúa og fyrirtæki með einni viðkomu og setjum fram skýra ferla þegar fyrirtæki sýna okkur áhuga. Fyrir barnafjölskyldur gerum við strætó gjaldfrjálsan fyrir börnin okkar. Við munum tryggja að leikskólagjöld verði að hámarki 50 þúsund kr. fyrir hvert heimili óháð barnafjölda. Fyrir heldri borgara eflum við stuðning og ráðgjöf ásamt því að fjölga tómstundaúrræðum og viðburðum. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Ef ég myndi búa einhvers staðar annars staðar en í Reykjanesbæ þá væri það á Akureyri. Það er yndislegt að komast norður á skíði og í þennan yndislega bæ.c Hver er uppáhalds bókin þín? „Uppáhalds bókin mín er His and hers eftir Alice Feeny“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Úff erfið spurning. Ég myndi draga úr þjónustu sem er ekki lögbundin sem kemur ekki niður á þjónustu við íbúa. En þetta yrði hrikalega erfitt.“ Frá vinstri Lilja Rún (dóttir Guðnýjar), Guðný Birna - heldur á Bryndísi Heiði frænku, Sveindís systir og lengst til hægri Alexandra Mist dóttir systir Guðnýjar. Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Ég myndi setja 100 milljónir í velferðarmál barna og ungmenna og sér í lagi til barna með sérþarfir.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Sælir hvað þetta var gaman“. Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Ég myndi alltaf velja að hringja. Það er svo gaman að tala endalaust enda er ég stjórnmálamaður.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Heimgreiðslur til foreldra eftir að fæðingarorlofi lýkur“ Kristrún Frostadóttir og Guðný Birna á kosningamiðstöð Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í Alþingiskosningunum 2024. Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Stjarneðlisfræðingur“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Búa til fleiri bókasöfn“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Neita að nota gervigreind, hef séð Terminator.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég get unnið með öllum enda jafnaðarmaður. Ég set þó skilyrði að fólk þekki rekstur og kunni að fara vel með fjármagn, annars hef ég ekki áhuga. Ég myndi ekki vilja útiloka neinn flokk enda meira sambærilegt með flokkum í sveitarstjórnarmálum en á Alþingi. Ég mun þó aldrei sætta mig við fólk sem talar gegn mannréttindum.“ Guðný Birna að halda 17. júní ræðu í Reykjanesbæ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Kannski hefði ég átt að sinna körfuboltaferlinum betur.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Reykjanesbær er besti bær Íslands með besta fólkið. Við erum úrræðagóð, leysum áskoranir og þekkjum ekkert annað en að vera öflug að standa í fæturna.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Kaffi með kaffirjóma“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Það sem fer í taugarnar á mér er að geta ekki gert meira. Sveitarfélög eru bara með þrjá tekjustofna og mikil pressa á að draga úr þeim til að mæta álögum á íbúa. Fyrir vikið erum við lengur að fjármagna fjárfestingar.“ Sveindís Guðmundsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Lilja Rún Gunnarsdóttir og Linda María Guðmundsdóttir á landsfundi Samfylkingarinnar Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Uppbygging íþróttamannvirkja er fremst á forgangslistanum ásamt því að við stofnum Velferðarhús Reykjanesbæjar fyrir velferðarþjónustuna. Það er auk þess verkefnalisti fyrir mörg verkefni sem mun aldrei tæmast. Aðalatriðið er að sinna þjónustu við íbúa vel.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Purple rain með Prince og No good start the dance með Prodigy“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Fyrir 2014 var slæm meðferð á fjármagni klárlega. Við höfum verið að glíma við það síðan.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „G-Bizz sem var dj nafnið mitt í Holtaskóla“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Ég mun standa við öll okkar loforð. Við unnum málefnin með okkar fólki og íbúum og rýndum í kostnaðinn. Við myndum aldrei lofa einhverju sem við getum ekki staðið við, við erum faglegt jafnaðarfólk og kunnum að reka sveitarfélag.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Reykjanesbær Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Fleiri fréttir Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Sjá meira