Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar 14. maí 2026 16:34 Samstaðan sem hreyfði bæinn Fyrir tæpum tveimur árum kynnti Carbfix verkefnið Coda Terminal, sem fól í sér að dæla koltvíoxíði niður í jörðina við Vallarhverfið til varanlegrar geymslu. Ég fór að kynna mér málið og við þá eftirgrennslan vöknuðu margar stórar spurningar. Þegar íbúi í hverfinu, Arndís Kjartansdóttir lýsti yfir áhyggjum sínum á hverfasíðunni á Facebook, fann ég að ég deildi þeim fyllilega með henni. Við þekktumst ekki neitt á þessum tíma, en þarna leiddu sameiginlegar áhyggjur okkar tvo íbúa saman. Það sem byrjaði sem einföld athugasemd varð fljótt að öflugu hreyfiafli íbúa sem settu stórt spurningarmerki við fyrirhugaðar framkvæmdir. Þetta var barátta Davíðs við Golíat. Við vorum íbúar með engan annan málsvara en okkar eigin raddir, en á skömmum tíma söfnuðust yfir 4.000 manns í hópinn okkar. Undirskriftalisti gegn verkefninu taldi 6.090 manns, þar sem meira en helmingurinn voru Hafnfirðingar. Samstaðan var ótvíræð. Gaslýsing á ekki heima í bæjarstjórn Í samtölum okkar við fulltrúa flokkanna kom í ljós mikill munur á viðmóti. Á meðan sumir nálguðust okkur strax, þurftum við að ganga eftir samtali hjá öðrum. Það er mikilvægt að kjörnir fulltrúar átti sig á því að áhyggjur íbúa eru sprottnar af raunverulegri umhyggju og raunverulegum tilfinningum sem á að mæta af virðingu en ekki afskiptaleysi. Því miður upplifðum við mikið af því sem kalla má „gaslýsingu“. Reynt var að gera lítið úr áhyggjum okkar og einstaka menn vildu kalla til sérfræðinga úr fræðiheiminum til að blása á óttann eins og hann ætti ekki rétt á sér. Sú nálgun fór þvert ofan í mörg okkar Hafnfirðinga. Þegar bæjarstjóri stendur með fólkinu Í miðjum þessum mótmælum kynntist ég Valdimari Víðissyni. Hann tók við bæjarstjóraembættinu í byrjun árs 2025 og mætti okkur af mikilli einlægni. Í upphafi vorum við efablandin, við trúðum því að bæjarstjórnin væri hreinlega harðákveðin í að fá höfnina sem fylgdi verkefninu á forsendum Carbfix frekar en bæjarins. Eftir því sem samtölin urðu fleiri fann ég að hjá Valdimar var engin uppgerð, hann var sannarlega að hlusta. Á troðfullum fundi í Bæjarbíó í ársbyrjun 2025 stóð hann fast á því að verkefnið yrði aldrei að veruleika í andstöðu við íbúa. Þar gaf hann það loforð standandi á sviðinu að við íbúarnir hefðum úrslitavaldið. Hann stóð með bæjarbúum þegar mest á reyndi. Heiðarleiki er forsenda íbúalýðræðis Þegar hætt var við verkefnið kom í ljós að allt sem Valdimar hafði sagt okkur var strangheiðarlegt. Hann sýndi og sannaði að hægt er taka ákvarðanir með festu án þess að hundsa raddir þeirra sem þar búa. Hann skildi að íbúalýðræði snýst um virðingu og samráð. Hann gerði aldrei lítið úr áhyggjum íbúa, heldur tók mark á þeim. Það var í kjölfarið á þessu sem Valdimar fékk mig til að ganga til liðs við Framsókn í Hafnarfirði. Eftir umhugsun var ákvörðunin auðveld. Mín gildi um heiðarleika, hlustun og virðingu fyrir íbúum stemma fullkomlega við hans vinnubrögð og stefnu flokksins. Ég vil sjá Valdimar áfram sem bæjarstjóra okkar því hann skilur íbúa og vill í alvöru gera samfélagið okkar betra. Ég hef upplifað það sjálfur að hann hlustar og þess vegna treysti ég honum til að leiða stærri verkefni í bænum og gæta þess að þau verði aldrei keyrð áfram í andstöðu við íbúa. Við þurfum á þínu atkvæði að halda þann 16. maí. X-B fyrri Framsókn í Hafnarfirði Þetta snýst um Hafnarfjörð. Höfundur er í 9.sæti á framboðslista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Coda Terminal Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar